Hólar í Hjaltadal: Við getum gert betur Pálína Hildur Sigurðardóttir skrifar 24. mars 2026 19:01 Í febrúar 2017 fluttum við hjónin í Skagafjörð, nánar tiltekið heim að Hólum í Hjaltadal. Í kjölfarið fór ég að kynna mér staðinn betur og varð hissa á því hversu fáir þekkja til hans og vita af þessum sögufræga stað, þar á meðal ég sjálf. Hólar eru einstakur staður. Byggðin er falleg og stílhrein; kirkjan stendur fremst, turninn rís hátt og skólahúsið blasir við að baki. Yfir öllu vakir Hólabyrða í allri sinni reisn, hæsta fjall við byggð á Íslandi. Dalurinn er umlukinn fjöllum sem skapa ramma utan um samfélagið, byggð í fjallasal. En Hólar eru ekki aðeins fallegur staður. Þeir eru einn merkasti sögu-, menningar- og menntastaður þjóðarinnar. Frá upphafi hafa Hólar gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu menntunar og menningar á Íslandi. Þar lagði Jón Ögmundsson grunn að skólastarfi og menningaruppbyggingu, Jón Arason flutti fyrstu prentsmiðjuna til landsins og á tímum Guðbrands Þorlákssonar var þar prentuð fyrsta heildarútgáfa Biblíunnar á íslensku. Hólar voru um aldir eitt helsta þekkingar- og menningarsetur landsins. Þessi arfleifð lifir enn. Í dag er Háskólinn á Hólum öflug menntastofnun með áherslu á hrossarækt, fiskeldi og ferðamál. Áhrif skólans á nær samfélagið eru veruleg. Hann skapar verðmæt störf, eykur tekjur sveitarfélagsins og hefur víðtæk margfeldisáhrif í atvinnulífi og þjónustu. Þá fylgir því mikill nýsköpunarkraftur að hafa háskóla í sínu nærumhverfi. Samfélagið á Hólum er lifandi heild þar sem nemendur, starfsfólk og íbúar mynda samofið samfélag. Þar er einnig rekinn leikskóli en því miður er nýbúið að loka grunnskólanum. Staðurinn tekur á móti bæði heimafólki og ferðamönnum allt eftir árstíðum. Þetta er samfélag sem andar og breytist með tímanum. Þess vegna er það áhyggjuefni að fylgjast með þeirri þróun sem virðist eiga sér stað á Hólum í dag. Undanfarin misseri hafa komið fram vísbendingar um að starfsemi Háskólans á Hólum hafi færst að hluta frá Hólum og hugmyndir eru uppi um frekari tilfærslur. Á sama tíma er bent á að innviðir og húsnæði séu í slæmu ástandi. Þá upplifa íbúar Hóla að fjármunir skili sér ekki nægilega í uppbyggingu staðarins sjálfs og að ekki sé hlustað á rödd þeirra. Þessi staða kallar á spurningar um ábyrgð. Ríkið ber vissulega mikla ábyrgð á mennta- og byggðamálum, en ábyrgðin stoppar ekki þar. Sveitarfélagið Skagafjörður gegnir lykilhlutverki í að styðja við samfélagið á Hólum og getur ekki skýlt sér endalaust á bak við að aðrir standi sig ekki ef það sjálft sinnir ekki sínu hlutverki til fulls. Sama á við um Háskólann á Hólum. Stofnun sem gegnir svo mikilvægu hlutverki þarf að standa vörð um þann stað sem hún byggir á og taka ákvarðanir sem styðja við uppbyggingu hans, ekki veikja hann. Þá er gegnsæi lykilatriði. Íbúar eiga rétt á skýrum upplýsingum um ráðstöfun fjármuna sem varða samfélagið. Það á bæði við um fjármuni sveitarfélagsins, til dæmis í innviðum eins og fráveitu, og einnig um fjármagn sem veitt er til viðhalds húsnæðis á vegum Háskólans á Hólum. Traust byggist á upplýsingum, án gegnsæis veikist það. Það er þó mikilvægt að halda því til haga að íbúar og velunnarar Hóla eru ekki að kalla eftir því að einhver annar leysi öll mál. Þvert á móti er vilji til þátttöku og uppbyggingar til staðar. Fólk vill leggja sitt af mörkum og taka þátt í að móta framtíð staðarins. Það sem vantar er samráð, sýn og raunveruleg samvinna. Ég hef stundum líkt því að vera íbúi á Hólum við það að vera skilnaðarbarn. Allir vilja njóta þess sem staðurinn gefur, tekjurnar og tækifærin, en þegar kemur að því að bera ábyrgð og byggja upp verður það flóknara. En það þarf ekki að vera þannig. Dæmi eru um að hægt sé að gera betur. Á Ásbrú hefur Reykjanesbær, þrátt fyrir að svæðið standi á ríkisjörð, lagt sig fram um að byggja upp samfélag og sinna íbúum með markvissum hætti. Það sýnir að vilji og skýr sýn skipta sköpum. Hólar í Hjaltadal eru ekki bara staður á korti. Þeir eru lifandi hluti af sögu okkar, menningu og menntun. Við stöndum nú á tímamótum þar sem ákvarðanir dagsins í dag munu hafa áhrif á framtíð staðarins til lengri tíma. Spurningin er einföld: ætlum við að leyfa þessari arfleifð að veikjast eða ætlum við að standa saman og styrkja hana? Hólar eiga það skilið. Fólkið sem þar býr og starfar á það skilið. Og við sem unnum Hólum eigum það líka skilið. Íslensk þjóð á það skilið. Höfundur er fyrrum íbúi og velunnari Hóla í Hjaltadal. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Byggðamál Skagafjörður Skóla- og menntamál Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar