Innlent

Flug­vél fór út af og öllum brautum lokað

Agnar Már Másson skrifar
Flugvélin fór út af brautinni um klukkan 17.30.
Flugvélin fór út af brautinni um klukkan 17.30. Flight radar

Öllum brautum á Keflavíkurflugvelli var tímabundið lokað í kvöld en flugvél Icelandair fór út af akbraut á vellinum þegar henni var ekið frá hliði upp úr klukkan 17. Engan sakaði.

„Þetta er bara minniháttar,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við Vísi. „En samkvæmt verklagi þarf að framkvæma skoðun á vélinni, svo fer hún líklega bara í afísingu og áfram sína leið.“

Hann segir að vélin, sem er af tegundinni AirBus, hafi verið á leið frá hliði og runnið til er henni var ekið frá flugstöðinni. Engan hafi sakað en um fulla vél var að ræða. 

Samkvæmt heimildum fréttastofu var öllum brautum á vellinum lokað en nú eru flugvélar teknar að lenda á vellinum á ný eftir að hafa verið flogið í biðstöðu í nokkra stund. 

Mikil hálka er á vellinum, að sögn Guðna. Hann segir að vélin fari að líkindum í loftið á ný um leið og búið sé að draga hana. Vélin á að fara til Lundúna.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×