Sjálfstæðisflokkur sem er ekki hægt að taka alvarlega Þórður Snær Júlíusson skrifar 23. mars 2026 12:30 Margir fylgdust með af áhuga um helgina hvort Sjálfstæðisflokkurinn, sem einu sinni var þungamiðja íslenskra stjórnmála til áratuga, myndi nýta flokksráðsfund til að breyta um kúrs og fara aftur í átt að miðju sem gerði flokkinn að því afli sem hann var áður. Hvort hann ætlaði að stíga skref í átt að því að láta taka sig alvarlega að nýju. Fyrir þá sem vonuðust eftir slíku þá er ágætt að segja það strax að ekkert slíkt gerðist. Þvert á móti losaði Sjálfstæðisflokkurinn allar hömlur og negldi sér bæði fast og hratt frá því að vera ábyrgur stjórnmálaflokkur með samfélagslegar áherslur yfir í það að vera fullkomlega ábyrgðarlaus fjarhægri kredduhópur sem virðist hafa það fyrst og síðast á dagskrá að leiða Ísland inn í tilraunaeldhús frjálshyggjubrjálæðis. Tilgangur: Lægri skattar á breiðustu bökin Hefst þá upptalningin. Sjálfstæðisflokkurinn ályktaði að það ætti að lækka skatta um 140 milljarða króna. Hann vill mæta þeirri aðgerð með hagræðingu í ríkisrekstri og eignasölu. Skattalækkanirnar eru sérstaklega útfærðar að einhverju leyti í plagginu. Þannig vill Sjálfstæðisflokkurinn til að mynda fara með tekjuskatt og útsvar í flatt 35 prósenta skattþrep fyrir alla. Það þýðir að skattar á þá sem borga í efsta þrepi, og erum með yfir 1,4 milljónir króna á mánuði í laun, lækka skarpt en skattar á flesta aðra hækka myndarlega. Sjálfstæðisflokkurinn vill líka opna aftur þær skattaglufurnar sem sitjandi ríkisstjórn hefur múrað upp í og nýtast nær einvörðungu tekjuhæstu hópum samfélagsins. Þar er um að ræða samnýtingu skattþrepa þegar annar aðilinn borgar skatta í efsta tekjuþrepi, og hefur þar með mánaðarlegar tekjur sem eru að minnsta kosti tvisvar sinnum miðgildi mánaðarlauna, og svo sá tvöfaldi skattafsláttur sem var til staðar fyrir fjármagnseigendur og tryggði þeim skattafslátt sem enginn annar fékk. Samanlagt skilaði lokun á þessum glufum ríkissjóði fjórum milljörðum króna á ári sem gætu nýst í önnur samfélagsleg verkefni. Þá vill Sjálfstæðisflokkurinn lækka fjármagnstekjuskatt niður í 20 prósent og hækka frítekjumark hans. Til að átta sig á því fyrir hvern flokkurinn er þar að vinna má benda á að 70 prósent allra fjármagnstekna, um 250 milljarðar króna árlega, fara til þeirra tíu prósent landsmanna sem eru þegar ríkastir. Þetta er því fyrst og síðast skattalækkun á þá. Svo vill Sjálfstæðisflokkurinn að sjálfsögðu afnema erfðafjárskatt. Skatt sem er lagður á eignir þegar þær eru færðar milli kynslóða, ekki á vinnu fólks eða hugvit. Um er að ræða bæði sanngjarnan, réttlátan, lýðræðislegan og efnahagslega skynsamlegan skatt. Ef slíkur skattur er ekki til staðar verður samfélagið stéttskipt eftir því hverra manna viðkomandi er, ekki eftir frammistöðu hans í lífinu. Til verður erfðabundið forréttindakerfi. Og þeir sem hagnast mest á afnámi hans eru auðvitað afkomendur þeirra sem eiga mest. Má þar nefna efnaðasta 0,1 prósent landsmanna, alls um 276 fjölskyldur, sem áttu 391 milljarð króna í eigin fé í lok árs 2024. Hver þarf spítala? Nú er rétt að taka fram að 140 milljarðar króna, upphæðin sem Sjálfstæðisflokkurinn vill lækka skatta um, eru tæplega níu prósent af ætluðum útgjöldum ríkissjóðs á þessu ári. Til að setja töluna í annað samhengi þá eru þessi upphæð sirka 78 prósent af því sem það kostar ríkissjóð að reka alla spítalaþjónustu á árinu 2026. Til að fjármagna skattalækkanir Sjálfstæðisflokksins með hagræðingu einni saman væri því hægt að minnka umfang heilbrigðisþjónustu á spítölum landsins niður í 22 prósent af því sem nú er. Rétt rúmlega einn fimmta. Í ályktuninni er ekki tilgreint sérstaklega hvaða ríkiseignir það er sem Sjálfstæðisflokkurinn vill selja. Það er þó hægt að horfa til álits fulltrúa hans í fjárlaganefnd um fjárlög yfirstandandi árs, sem lagt var fram í desember, til að sjá hvaða hugmyndir eru þar á ferðinni. Þar kom fram að flokkurinn vilji selja allt hlutafé ríkisins í Landsbankanum, fimmtung allra fasteigna sem Framkvæmdasýsla ríkisins heldur á, ÁTVR og selja allar fasteignir í eigu Íslandspósts. Hann vill selja tíu prósent af jörðum sem ríkið á, allt hlutafé í Endurvinnslunni, Nýsköpunarsjóðinn Kríu, Sparisjóð Austurlands og 49 prósent af hlutafé ríkisins í ISAVIA, sem á meðal annars Keflavíkurflugvöll. Fyrir þetta áætlar flokkurinn, í áðurnefndu áliti sem byggir á greiningu frá Viðskiptaráði, að fá 420 milljarða króna. Það bendir til vilja til að selja þessar eignir á ríflegum afslætti, enda ljóst að Landsbankinn einn og sér ætti að geta farið langt í að vera svo mikils virði. Eignasalan ætti því að duga til að borga fyrir skattalækkanirnar í þrjú ár. Svo tæki hagræðingin ein við. Inn í þetta mengi verður líka að taka að þegar búið er að selja verðmætar eignir þá kemur enginn arður af þeim inn í ríkissjóð. Landsbankinn einn og sér hefur greitt vel á þriðja hundrað milljarða króna í arð til ríkissjóðs eftir bankahrun og alls um 35 milljarða króna í ár. Brjótum allt Hagræðingatillögurnar eru ekki síður kreddufullar, óljósar og tilraunakenndar. Að uppistöðu snúast þær um að Sjálfstæðisflokkurinn vilji koma stærri hluta heilbrigðisþjónustu, menntakerfi og samgönguæðum þjóðarinnar í hendur hagnaðardrifinna einkaaðila og láta þá um að sinna þessari þjónustu. Flest mátulega jarðtengt fólk sér þó að það er erfitt að sjá hvernig það eigi að skila raunverulegri hagræðingu þegar ríkið mun alltaf þurfa að borga reikninginn, að viðbættri arðsemiskröfu einkaaðilanna. Ekki nema að það eigi að draga úr allri þjónustu samhliða. Þjónustu spítala, skóla og vega. Svo vill Sjálfstæðisflokkurinn, sem lagði niður félagslega íbúðarkerfið um síðustu aldarmót með stórkostlegum neikvæðum afleiðingum fyrir viðkvæmustu hópa samfélagsins, leggja niður almenna íbúðakerfið og félagslegt íbúðakerfi sveitarfélaga, sem bæði eru rekin með óhagnaðardrifnum hætti, og búa til markaðsvöru úr eignum þeirra. Að endingu vilja Sjálfstæðismenn líka hætta við allar gjaldahækkanir sem lagðar hafa verið á í tíð sitjandi ríkisstjórnar til að fjármagna fjársvelt velferðarkerfi og skapa færi fyrir ríkið til að vinna á mörg hundruð milljarða króna innviðaskuld. Þeir vilja draga til baka leiðréttingu veiðigjalds, innleiðingu kílómetragjalds og hækkun vörugjalda og standa gegn því að nokkur opinber gjöld verði lögð á greinar ferðaþjónustu. Ekki kveikja í kofanum Ef við drögum þessar barnalegu tillögur saman þá sér flest skynsamt og raunveruleikatengt fólk að skattalækkun á ríkt fólk upp næstum tvisvar sinnum árlegan kostnað ríkisins við allar samgöngur, brunaútsala á verðmætum og tekjuberandi eignum og stórfelld tilfærsla velferðarkerfa úr opinberum og óhagnaðardrifnum rekstri yfir í einkarekstur með skýrar arðsemiskröfur er ekki reikningsdæmi sem gengur upp. Ef ríkið aflar ekki tekna þá getur það ekki staðið undir grundvallarþjónustu og kreddurnar um að kakan muni bara stækka svo ægilega mikið við það að framkvæma þessa skefjalausu frjálshyggjutilraun á íslensku samfélagi eru án innistæðu. Þetta mun einungis skila verra velferðarkerfi og því að ríkissjóður verður rekinn í gríðarlegum halla og þar af leiðandi á yfirdrætti. Það er ekki hægt að taka stjórnmálaöfl sem tala með þessum hætti alvarlega. Svona talar ekki ábyrgt fólk. Ísland er eitt besta land í heimi vegna þess að það bar gæfa til að byggja upp víðfeðmt velferðarkerfi samhliða efnahagslegum vexti. Við Íslendingar stöndum saman og berum ábyrgð á hverju öðru. Við tilheyrum samfélagi. Það er ekki gert með því að fylgja uppskrift Sjálfstæðisflokks um að kveikja í kofanum. Höfundur er framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórður Snær Júlíusson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar