Hafi ekki áhrif á leigumarkaðinn til skemmri tíma Smári Jökull Jónsson skrifar 23. mars 2026 13:02 Róbert Farestveit er sviðsstjóri hagfræði- og greiningardeildar ASÍ. Vísir/Lýður Valberg Sviðsstjóri hjá ASÍ segir nýsamþykkt frumvarp um breytingu á lögum um skammtímagistingu ekki stuðla að þeim breytingum sem þurfi á leigumarkaði. Ekki sé um að ræða bráðaaðgerð sem hafi áhrif á leigumarkaðinn til skemmri tíma.
Frumvarp atvinnuvegaráðherra um breytingu á lögum um gististaði var samþykkt á Alþingi fyrir helgi. Hafa nýju lögin meðal annars áhrif á fyrirtæki sem rekið hafa íbúðahótel og er rekstrarleyfi þeirra nú tímabundið. Endurnýjun rekstrarleyfis krefst þess að fasteignir yrðu endurskilgreindar sem atvinnuhúsnæði í stað íbúða og rekstrarstjóri GreenKey, sem þjónustar meðal annars íbúðahótel, segir í viðtali á Vísi að fallist sveitarfélög ekki á að notkunarflokki fasteignanna sé breytt gæti það þýtt að slíkt hótel þurfi að loka. Sviðsstjóri hagfræði- og greiningarsviðs ASÍ segist ekki líta á lagabreytinguna sem bráðaaðgerð sem hafi mikil áhrif á leigumarkaðinn til skemmri tíma. „Þarna eru undir, alla vega það sem snýr að lögaðilunum, um 400 íbúðir sem hafa fimm ára aðlögunartíma og svo er það í höndum sveitarfélaga að ákveða hvort slíkur rekstur geti haldið áfram. Þannig að í okkar huga er þetta ekki aðgerð sem hefur nein stór áhrif til skemmri tíma en gæti stuðlað að meira jafnvægi á húsnæðismarkaði til lengri tíma,“ segir Róbert Farestveit, hagfræðingur og sviðsstjóri hagfræði- og greiningarsviðs ASÍ. „Þarna er annars vegar verið að bregðast við því að sveitarfélög hafi átt erfitt með að hafa stjórn á skipulagi og að atvinnurekstur hefur átt sér stað í íbúðum sem hugsaðar voru sem íbúðarhúsnæði. Þetta er líka auðvitað gert að ákveðnu leyti til að mæta öryggissjónarmiðum um brunavarnaeftirlit og slíkt.“ Breyti ekki því sem þarf að breyta Í umsögn ASÍ um málið á sínum tíma sagði að í frumvarpinu væri gengið mun skemur í takmörkun á skammtímaleigu en í mörgum borgum Evrópu, en hámarksfjöldi daga sem einstaklingur getur leigt út fasteign í heimagistingu er áfram níutíu dagar en hefur í sumum borgum verið fækkað í þrjátíu. Þá stuðli aðgerðirnar ekki að þeim breytingum sem mest þörf er á. „Það er ekkert sjálfgefið að þessar íbúðir mæti því endilega. Í okkar huga er það sem mest vantar á markaðinn í dag ódýrari eignir til leigu og eignar. Þá er ég að tala um smærri og hagkvæmari eignir sem miða að fyrstu kaupendum og slíkum hópum,“ bætir Róbert við.
Leigumarkaður Fasteignamarkaður Húsnæðismál Airbnb Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira