Minnir á að flest kynferðisbrotin eigi sér stað á heimilinu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. mars 2026 12:02 Tótla I Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla. Vísir/Vilhelm Meint brot gegn barni á Krakkakoti á Álftanesi sem barnayfirvöldum í Garðabæ var tilkynnt um í síðustu viku er komið inn á borð lögreglu. Framkvæmdastjóri Barnaheilla segir eðlilegt að fjöldi frétta um meint brot á leikskólum veki ugg en segir börn alltaf þurfa að njóta vafans.
Greint var frá því um helgina að barnavernd Garðabæjar hafi nú til skoðunar meint brot gegn barni á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er málið komið inn á borð kynferðisbrotadeildar. Bætist þetta við mál þau sem nýverið hafa komið upp þar sem tilkynnt er um meint brot gegn börnum á leikskólum, en síðasta ár hefur verið tilkynnt um fimm slík mál á fimm leikskólum, síðast í síðustu viku á Akranesi þar sem lögregla hefur slíkt mál til rannsóknar. Tótla I. Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla segir eðlilegt að fjöldi tilkynninga um brot hafi aukist. „Það er eðlilegt þegar það er mikil umræða í samfélaginu að það komi upp fleiri tilkynningar. Foreldrar eru að lesa í merki og hlusta betur á börnin sín og við viljum auðvitað fá inn fleiri tilkynningar heldur en færri. Við vitum að það eru of mörg mál í gangi svo við viljum að sjálfsögðu að foreldrar séu á varðbergi og kynni sér málin og eigi samtöl við börnin sín.“ Þannig rati málin í eðlilegan farveg hjá fagaðilum sem rannsaki þau og þá hvort skoða þurfi þau betur. „Við skynjum auðvitað að fólk er hrætt þegar það heyrir fréttir úr samfélaginu af brotum á leikskólum en við vitum hinsvegar að langflest brotin eiga sér stað heima fyrir.“ Mikilvægt að ræða við börn um mörk Mikilvægast sé að hlustað sé á börn og að þau fái þau skilaboð að þau megi segja frá. Mikil breyting hafi orðið á því á undanförnum árum hvernig hugsað sé um réttindi barna og hvort hlustað sé á þau. Börn eigi alltaf að fá að njóta vafans. „Lengst af var álitið að börn á leikskólaaldri væru of ung til að skilja hvað væri að eiga sér stað, en við vitum að það er mikilvægt strax frá upphafi að ræða við börn um líkama sinn og mörk og að það megi enginn fara yfir þeirra mörk,“ segir Tótla. „Við viljum að sjálfsögðu að fólk tilkynni frekar heldur en að sitja heima með vafa. Af því að börnin eiga alltaf að fá að njóta vafans. Og svo á það bara að vera hlutverk fagaðila að greina þar úr.“
Ofbeldi gegn börnum Leikskólar Börn og uppeldi Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar Sjá meira