Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Sindri Sverrisson skrifar 20. mars 2026 09:01 Liverpool gæti tryggt ensku úrvalsdeildinni aukasæti í Meistaradeild Evrópu, sjötta sætið, með því að vinna keppnina í ár og enda neðar en í 4. sæti úrvalsdeildarinnar. Getty/Carl Recine Brentford, Everton, Newcastle og fleiri lið gætu horft til þess möguleika á lokaspretti ensku úrvalsdeildarinnar að mögulega gæti 7. sæti dugað til að komast inn í sjálfa Meistaradeild Evrópu.
Eftir úrslit vikunnar er svo gott sem frágengið að enska deildin verði önnur tveggja sem fá aukasæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð, líkt og í vetur. Það þýðir að fimm efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar fái sæti í Meistaradeildinni. Hins vegar er það líka þannig að Aston Villa og Liverpool, sem eru rétt fyrir ofan Chelsea sem er í 6. sæti, gætu komist í Meistaradeildina á næstu leiktíð með öðrum leiðum. Það fylgir því nefnilega sæti í Meistaradeild Evrópu að vinna keppnina í ár, eins og Liverpool á möguleika á, og einnig því að vinna Evrópudeildina sem Villa er nú komið í 8-liða úrslit í. Arsenal á vissulega einnig möguleika á að vinna Meistaradeildina, og er talið sigurstranglegt. Það hefði hins vegar ekki áhrif á sætafjölda enskra liða í keppninni því það er ljóst að Arsenal mun enda meðal fjögurra efstu liða í ensku úrvalsdeildinni. En ef að Liverpool vinnur Meistaradeild Evrópu og endar neðar en í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar þá mun liðið í 6. sæti úrvalsdeildarinnar fá „aukasætið“ í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Sama gildir ef að Aston Villa vinnur Evrópudeildina og endar neðar en í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Og ef að bæði Liverpool og Villa vinna stóru Evrópukeppnirnar, missa Chelsea upp fyrir sig og enda neðar en í 4. sæti úrvalsdeildarinnar, þá mun liðið í 7. sæti úrvalsdeildarinnar komast í Meistaradeildina. Það sæti mun alltaf skila að minnsta kosti sæti í Sambandsdeild Evrópu en möguleikinn á að komast í sjálfa Meistaradeildina hlýtur að gera sætið mun meira freistandi.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Sambandsdeild Evrópu Liverpool FC Aston Villa FC Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Haukur leiddi endurkomu Löwen Handbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sjá meira