Samningur í höfn: Írar treysta Heimi fyrir EM á heimavelli Sindri Sverrisson skrifar 19. mars 2026 13:24 Heimir Hallgrímsson sat fyrir svörum á fjölmennum blaðamannafundi í dag. Getty/Stephen McCarthy Eftir afar langan aðdraganda er nú ljóst að Heimir Hallgrímsson hefur skrifað undir samning um að stýra áfram írska karlalandsliðinu í fótbolta fram yfir EM 2028.
Greint var frá þessu í dag þegar Heimir kynnti leikmannahópinn sem á að koma Írlandi á HM í sumar, í gegnum umspilið í lok þessa mánaðar. Írar verða gestgjafar næsta Evrópumóts, ásamt Englandi, Skotlandi og Wales, og því ljóst að Heimi er ætlað að stýra írska liðinu á heimavelli sumarið 2028. Heimir tók við írska landsliðinu sumarið 2024 og mátti lengi vel þola harða gagnrýni og þótti valtur í sessi. Smám saman hefur hann hins vegar unnið Íra á sitt band og því ekki annað í stöðunni en að framlengja samninginn sem annars hefði getað runnið út núna um mánaðamótin. Írland kom sér í HM-umspilið með ævintýralegum sigrum gegn Portúgal og Ungverjalandi í nóvember en þarf nú að vinna Tékkland á útivelli eftir viku og svo Danmörku eða Norður-Makedóníu á heimavelli í úrslitaleik, til að komast á HM. „Ég er ótrúlega stoltur og ánægður með að skuldbinda mig írska lýðveldinu til framtíðar. Ég hef alltaf sagt að við séum saman á þessari vegferð – leikmennirnir, starfsfólkið og okkar frábæru stuðningsmenn,“ sagði Heimir eftir að tilkynnt var um nýja samninginn. „Ég sé raunverulegar framfarir og þá gríðarlegu möguleika sem búa í þessum hópi, svo þetta var auðveld ákvörðun fyrir mig. Að skrifa undir núna, fyrir umspilsleikina, er yfirlýsing um sameiginlega trú okkar og gerir okkur kleift að einbeita okkur 100% að því risavaxna verkefni sem bíður okkar í mars, án nokkurra truflana. Ég hef fulla trú á því að við séum stöðugt á réttri leið og ég vil þakka knattspyrnusambandinu fyrir að sýna mér það traust að leiða liðið áfram,“ sagði Heimir. "I am incredibly proud and delighted to commit my future to the Republic of Ireland. I have always said that we are on a journey together - the players, the staff, and our incredible supporters” 🇮🇪💚Read more on the Head Coach’s contract extension 🤝👉 https://t.co/M9cq1YZxEB pic.twitter.com/2aSPCwNcF7— Ireland Football ⚽️🇮🇪 (@IrelandFootball) March 19, 2026 Himinlifandi með að halda Heimi Forkólfar írska knattspyrnusambandsins eru í skýjunum yfir því að búið sé að semja aftur við Heimi. „Við erum himinlifandi með að hafa tryggt okkur Heimi til langs tíma. Hann hefur fært okkur skýra framtíðarsýn, sterka taktíska sjálfsmynd og trú á landslið karla á ný. Þessi nýi samningur veitir þann stöðugleika og forystu sem þarf til að ná metnaðarfullum markmiðum okkar, ekki aðeins í komandi umspilsleikjum heldur einnig í uppbyggingunni fyrir sögulegt heimamót á EM 2028. Þetta er yfirlýsing um ásetning okkar og traust á þeirri stefnu sem Heimir leiðir okkur á,“ sagði David Courell, framkvæmdastjóri FAI, í tilkynningu. John Martin, yfirmaður knattspyrnumála hjá írska sambandinu, tók í sama streng: „Frá því ég var ráðinn hef ég byggt upp frábært starfssamband við Heimi og það var strax ljóst að við deilum sömu gildum og skýrri sýn á framtíð írskrar knattspyrnu. Við erum sammála um markmið okkar, allt frá því að styrkja leiðirnar upp og í A-landsliðunum. Skuldbinding Heimis við heildræna nálgun á leikinn er afar mikilvæg fyrir langtímaárangur okkar og ég er himinlifandi með að við munum halda áfram að vinna saman að því að knýja írska knattspyrnu áfram.“
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Fleiri fréttir Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Holland - Japan | Hefja leik í hörkuriðli „Smá þolinmæði sem þarf“ Real Madrid keypti Cucurella af Chelsea Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Uppgjörið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Ísak Bergmann trúlofaður Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Sjá meira