Segir meinta vegtolla ekki á dagskrá Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. mars 2026 17:16 Daði Már segir Vilhjálm sjálfan hafa stutt tillögu um vegtolla á sínum tíma. Fjármálaráðherra segir að ekki standi til að innheimta veggjöld á helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðisinu með frumvarpi um nýtt innviðafélag þrátt fyrir að fram komi að það hafi verið til skoðunar í greinargerð með frumvarpinu. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafi sjálfur stutt vegtolla á sínum tíma.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra lagði í gær fram frumvarp um stofnun innviðafélags í eigu ríkisins sem ætlað er að hraða uppbyggingu stórra samgönguverkefna. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að við vinnslu þess hafi verið skoðað að taka upp innheimtu veggjalda á helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu, líkt og á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi. Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti á lista flokksins í Reykjanesbæ gagnrýndi áformin harðlega og sagði þau myndu bitna mjög á flestum landsmönnum. Daði Már segir slík veggjöld ekki vera til skoðunar, þvert á það sem stendur í greinargerðinni. Það er kannski nærtækast að spyrja bara að því, er til skoðunar að innheimta veggjöld á þessar helstu leiðir til og frá höfuðborgarsvæðinu? „Nei. Ég verð nú að viðurkenna að mér finnst umræðan sérstök. Það sem þarna er verið að vísa til er að ef að við færum í framkvæmdir til þess að bæta umferðarflæðið á þessum æðum, að þá mætti fjármagna það á grundvelli félagsins. Dæmi um það gæti til dæmis verið að ráðast í þær framkvæmdir sem þyrfti til þess að hækka hámarkshraða og þar með stuðla að samgöngubótum. Og líka þá til dæmis tvöföldun Hvalfjarðarganga þegar þar að kemur. Það er bara mjög mikil innviðaskuld á Íslandi,“ segir Daði. „Og það er mjög mikilvægt að við vinnum á henni og ég held að almennt sé það síðan þannig að svo lengi sem er í boði hjáleið að þá viljum við frekar fá þjónustuna og borga fyrir hana en að fá þjónustuna frekar en ekki. Ég vil nú kannski síðan bæta við að þetta kemur úr hörðustu átt í ljósi þess að þetta hefur nú beinlínis verið tillaga sem Vilhjálmur sjálfur hefur komið með og stutt.“
Samgöngur Umferð Skattar, tollar og gjöld Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Innlent Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki Innlent Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent „Nú hafi orðið bakslag“ Innlent Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Innlent Grunur um brot gegn barni í algjörum forgangi hjá lögreglu Innlent Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Innlent Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Innlent Fleiri fréttir Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Kreppuverðbólga og kjaraviðræður í aðsigi Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Ógnaði hópi ungmenna með eggvopni Staðráðin í að flýta fyrir samningaviðræðum Faðir um brunann á Stuðlum, uppgjör í undirheimum og forsendubrestur Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Segir meinta vegtolla ekki á dagskrá Bein útsending: Ræðir glæpi gegn náttúrunni Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki „Nú hafi orðið bakslag“ Semja við Ísaksskóla um leik- og grunnskóla í Vatnsendahvarfi Þyrlan kölluð út vegna slasaðrar konu Loka hæð vegna myglu á sjúkrahúsinu Skrifuðu undir samkomulag um varnarsamstarf við ESB Skipta Kjartani og Mörtu út fyrir nýliðana tvo Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Útilokar oddvitaframboð í borginni Undirbúa mögulegar kjaraviðræður: Stjórnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar Setning Arndísar Báru framlengd um ár Grikkinn verður ákærður fyrir manndráp Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Úrgangur frá sjókvíaeldi samsvarar skólpi frá allt að tífaldri íbúatölu Noregs Tilraun til manndráps í Túnunum og óánægja með vaxtahækkun Asahláka og vatnavextir geti skapað hættu á vegum Alvarlegir annmarkar á brunavörnum á Stuðlum Einstefna komumegin við Keflavíkurflugvöll Grunur um brot gegn barni í algjörum forgangi hjá lögreglu Sjá meira
Undirbúa mögulegar kjaraviðræður: Stjórnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar