Viðskipti erlent

Ný gervigreindargrafík Nvidia strax um­deild

Samúel Karl Ólason skrifar
Munurinn á hefðbundinni grafík og því þegar kveikt er á DLSS 5. Mörgum virðist ekki lítast vel á þessa þróun.
Munurinn á hefðbundinni grafík og því þegar kveikt er á DLSS 5. Mörgum virðist ekki lítast vel á þessa þróun. Nvidia

Forsvarsmenn fyrirtækisins Nvidia kynntu í gær nýjung hvað varðar grafík fyrir tölvuleiki. Hún kallast DLSS 5 og er ætlað að bæta lýsingu í tölvuleikjum og gera grafík þeirra raunverulegri. Hún þykir þó strax töluvert umdeild.

Jensen Huang, forstjóri Nvidia, sagði að með stillingunni væri hægt að nýta gervigreindartækni fyrirtækisins til að gera tölvuleiki raunverulegri í útliti með minni reiknigetu en áður. Um sé að ræða „GPT vendipunkt“ fyrir tölvuleikjagrafík.

Í tilkynningu fyrirtækisins segir að um einhverja mestu framþróun í grafík tölvuleikja sé að ræða frá þróun geislarakningar (e. ray tracing) árið 2018. Tæknin bjóði framleiðendum tölvuleikja upp á að gera mjög raunverulega leiki sem hafi áður eingöngu verið mögulegt í Hollywood.

DLSS sameinar hefðbundna grafíktækni við gervigreind til að bæta lýsingu og útlit hluta í leikjum í rauntíma.

Margir hafa líkt DLSS 5-stillingunni við að bæta AI-filter við útlit tölvuleikja og kvarta margir í athugasemdum við myndbönd Nvidia yfir því að stillingin breyti upprunalegri hönnun tölvuleikja of mikið, miðað við þau sýnidæmi sem Nvidia hefur birt.

Margir hafa þar að auki sagt að leikirnir virðist of gervigreindar-legir með DLSS 5.

Nvidia hefur um árabil framleitt tölvuflögur fyrir leikjaspilun en sá hluti fyrirtækisins hefur dregist saman, hlutfallslega og þá sérstaklega miðað við þróun og framleiðslu fyrirtækisins á tölvuflögum fyrir gervigreind.

DLSS 5 verður fyrst aðgengilegt í haust.

Meðal fyrstu leikja sem munu hljóta DLSS 5 stuðning eru Resident Evil Requiem, The Elder Scrolls IV: Oblivion Remastered, EA SPORTS FC, Starfield, Hogwarts Legacy, AION 2, Assassin‘s Creed Shadows, Black State, CINDER CITY, Delta Force, Justice, NARAKA: BLADEPOINT, NTE: Neverness to Everness, Phantom Blade Zero, Sea of Remnants og Where Winds Meet.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×