Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Atli Ísleifsson skrifar 17. mars 2026 14:24 Veðurstofan vinnur að endurskoðun sviðsmynda. Myndin er úr safni. Vísir/Arnar Landris og kvikusöfnun heldur áfram með svipuðu móti og síðustu vikur og er innstreymi af kviku hægt en stöðugt. Samkvæmt líkanreikningum hafa nú um yfir 23 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí í fyrra.
Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar þar sem fram kemur að kvikusöfnun undir Svartsengi hafi aldrei verið meiri frá upphafi þessarar eldgoshrinu. „Á meðan kvikusöfnun heldur áfram og þrýstingur í kerfinu hækkar er líklegasta sviðsmyndin að kvikuhlaup verði frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss. Þar sem magn kviku undir Svartsengi er nú meira en áður í þessari goshrinu er mögulegt að næsta eldgos geti orðið umfangsmeira en fyrri gos, nái kvikan að hluta til eða öllu leyti til yfirborðs. Líklegasta staðsetning gossprungu eða kvikuhlaups er á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Sýlingarfells, þar sem fyrri kvikuhlaup og eldgos á Sundhnúksgígaröðinni hafa komið fram. Þó gæti svæði þar sem hætta er á gosopnun verið víðara og náð frá Grindavík í suðri að svæði norðvestan við Keili. Veðurstofan vinnur áfram að frekari greiningu á mögulegri framvindu eldvirkninnar og verða niðurstöður þeirrar vinnu kynntar í lok mars. Mikilvægt er að hafa í huga að langt goshlé þarf ekki að þýða að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé lokið. Myndbandið sýnir líkanútreikninga á kvikusöfnun á 4 km dýpi undir Svartsengi frá 17. júlí. Svörtu punktarnir sýna daglega líkanútreikninga á uppsöfnuðu rúmmáli kviku frá júlí 2025 til dagsins í dag. Gula svæði grafsins sýnir neðri mörk rúmmáls samkvæmt líkaninu, sem náðust í byrjun október. Bláa svæði grafsins sýnir efri mörk rúmmáls, sem náðust um miðjan febrúar. Hraði kvikusöfnunar hefur verið breytilegur og því hafa dagsetningarefri og neðri marka færst til. Notast er við svokallað Mogi-líkan við útreikninginn. Skjálftavirkni Áfram mælist lítil jarðskjálftavirkni yfir kvikuganginum. Hættumat Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 31. mars. Veðurstofan fylgist náið með þróuninni og uppfærir hættumatið ef breytingar verða á virkninni,“ segir á vef Veðurstofunnar.
Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Sjá meira