Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Sindri Sverrisson skrifar 17. mars 2026 09:00 Bjarki Már Elísson og félagar komust í úrslitaleik HM félagsliða í haust en töpuðu þar í framlengdum leik gegn Barcelona og náðu ekki að verja titilinn sinn. Það var þó ásættanlegt að mati framkvæmdastjórans. EPA/MOHAMED HOSSAM Framkvæmdastjóri ungverska handboltaveldisins Veszprém, sem Bjarki Már Elísson er á mála hjá, sparaði ekki stóru orðin í yfirlýsingu á vef félagsins og hafði í hótunum við leikmenn og þjálfara.
Framkvæmdastjórinn, Dr. Csaba Bartha, er hundóánægður með frammistöðu Veszprém í Meistaradeild Evrópu og greinilega þeirrar skoðunar að búið sé að setja svo mikla fjármuni í liðið að það eigi að berjast um Evrópumeistaratitilinn. Hann kveðst búinn að upplýsa leikmenn og þjálfara um að þeim verði refsað, eins og sjá má í yfirlýsingunni hér að neðan, náist sett markmið ekki. Um þetta var fjallað á handbolti.is. Þrátt fyrir glæsta sögu hefur Veszprém ekki enn tekist að vinna Meistaradeildina en komist í úrslitaleikinn fjórum sinnum. Bartha bendir í grein sinni á að árið 2024 hafi verið ráðinn þjálfari sem unnið hafi Meistaradeildina þrisvar sinnum, en það er Spánverjinn Xavier Pascual sem stýrði Barcelona um árabil. Það er alvöru pressa á þjálfaranum Xavier Pascual.EPA/HANNIBAL HANSCHKE Bartha segir alla ábyrgð á leikmannakaupum og sölum vera á höndum þjálfara og yfirmanns íþróttamála, ráðist hafi verið í mikil aukaútgjöld síðasta sumar og að 16 af 17 breytingum hafi verið að beiðni þjálfarateymisins. Aðeins brotthvarf Ludovic Fabregas, sem enginn beri ábyrgð á, sé þar undantekning. Í því ljósi sé krafan meiri en sú að liðið komi haltrandi inn í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar, með því að enda í 5. sæti í sínum riðli, og nú sé fyrsta skref að slá út PSG í umspili um sæti í 8-liða úrslitum. Enn sé allt opið en náist ekki sett markmið þá verði svo sannarlega afleiðingar, bæði fyrir þjálfara og leikmenn. Veszprém var einu marki frá því að komast í fjögurra liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fyrra, með Bjarka og þá einnig Aron Pálmarsson innanborðs, en tapaði gegn Magdeburg sem svo vann titilinn.Getty/Andreas Gora „Mér finnst að nú sé þörf á beinni og afgerandi íhlutun af minni hálfu, en áfram ekki varðandi taktík eða æfingar. Í þessu ljósi hef ég tekið þá stjórnunarákvörðun að ef markmiðin sem sett voru sameiginlega í upphafi tímabils nást ekki, mun ég beita sameiginlegri ábyrgð og afgerandi refsingu, sem ég hef upplýst liðið og þjálfarateymið um,“ skrifaði Bartha og hélt áfram: „Fyrsta verkefnið núna er að ná árangri í umspili Meistaradeildarinnar gegn PSG. Væntingin gæti verið sterkari ákvörðun, jafnvel uppsögn þjálfarateymisins. Ég tel að nú verðum við fyrst að klára tímabilið, endanlegt mat er aðeins hægt að gefa með hliðsjón af úrslitunum. Það getur verið að vegna skorts á árangri þurfum við að taka alvarlegri ákvarðanir í sumar. Nú set ég pressu, og ef liðið stenst hana ekki, mun það hafa frekari afleiðingar.“
Ungverski handboltinn Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti Fleiri fréttir Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Sjá meira