Fékk rautt fyrir að klípa í klofið Sindri Sverrisson skrifar 16. mars 2026 08:30 Abdel Abqar fékk á endanum beint rautt spjald fyrir að klípa Alexander Sörloth í millifótakonfektið. Samsett/X/Getty Abdel Abqar sór upp á fjölskyldu sína að hann hefði ekki ætlað sér að klípa Alexander Sörloth á viðkvæmasta stað, eftir að hafa fengið rauða spjaldið fyrir það í spænska fótboltanum um helgina.
Hinn marokkóski Abqar og Normaðurinn Sörloth áttust við í leik Getafe og Atlético Madrid á Metropolitano leikvanginum á laugardag, þar sem Atlético vann 1-0 sigur. Umræðan eftir leik var hins vegar um það þegar Abqar kleip í kynfæri Sörloths og fékk að lokum rautt spjald fyrir, eftir að dómarinn hafði skoðað atvikið gaumgæfilega á sjónvarpsskjá. 🚨🚨| It appears Abdel Abqar touched Alexander Sørloth’s private area, causing Sørloth to react angrily and pull him down.As a result, Abqar was shown a red card. 😳🟥 pic.twitter.com/pD7IFmwq4G— CentreGoals. (@centregoals) March 14, 2026 Sörloth var skiljanlega ekki skemmt eftir klipið og togaði Abqar niður. Sá norski fékk gult spjald en eins og fyrr segir var gulu spjaldi Abqar breytt í rautt. Hann hélt þó fram sakleysi sínu eftir leik. „Sver að ég ætlaði ekki að snerta hann þarna“ „Ég vil að það sé alveg á hreinu að ég ætlaði mér ekki að snerta leikmanninn á þessu svæði,“ sagði Abqar við Movistar. „Í fótbolta snertast menn, við rekumst á, en ég ætlaði mér ekki að snerta hann þarna. Myndbandið sýnir greinilega að ég var ekki að horfa þegar ég snerti hann þarna. Ég sver að ég ætlaði ekki að snerta hann svona. Ég vildi koma við hann, eins og gerist í fótbolta. Dómarinn sá þetta þannig að ég hefði ætlaði mér að snerta hann þarna en það var ekki ætlunin. Ég sver það við fjölskyldu mína að ég vildi ekki snerta hann þarna,“ sagði Abqar og hélt áfram: „Ef að þið horfið á myndbandið þá sést að ég er ekki að horfa á hann og höndin mín átti að fara á magann á honum. Stundum snertir maður andstæðinginn þar til að vita hvar hann er.“ Hægt fyrir 30 árum en ekki í dag Jose Bordalas, stjóri Getafe, varði varnarmanninn sinn líka í viðtali. „Ég er búinn að sjá þetta og ég tel að Abqar hafi rétt fyrir sér. Hann var aldrei að horfa á Sörloth; þeir voru að kljást allan leikinn eins og er dæmigert á milli framherja og varnarmanns. Án þess að horfa þá ætlar hann að grípa í treyjuna en grípur í stuttbuxurnar,“ sagði Bordalas. Nahuel Molina skoraði sigurmark Atlético strax á 8. mínútu.Getty/Denis Doyle Juan Musso, markvörður Atlético, var á öðru máli: „Svona lagaði gerðist bara fyrir 30 árum. Það var rétt hjá dómaranum að reka hann af velli. Áður fyrr var hægt að gera þetta en núna er ekkert svigrúm fyrir svona,“ sagði Musso. Sigurinn þýðir að Atlético er sex stigum á eftir grönnum sínum í Real Madrid sem eru í 2. sæti.
Spænski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira