Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Tómas Arnar Þorláksson skrifar 15. mars 2026 15:46 Gestur Hansson ofanflóðasérfræðingur að störfum í gær. Björgunarsveitin Strákar Tvö snjóflóð hafa fallið skammt frá Siglufirði síðan í nótt. Leiðargarðar við bæinn hafa sannað gildi sitt og skýlt byggðinni frá snjóflóðum að sögn ofanflóðasérfræðings á svæðinu. Annað snjóflóðið var töluvert stórt.
Íbúi sem fréttastofa ræddi við segir snjóflóð hafa hafnað á varnargarði bak við hús sitt en segist engar áhyggjur hafa. „Við erum bara slök,“ sagði hann. Vegagerðin hefur lýst yfir hættustigi við Súðavíkurhlíð og óvissustigi við Flateyrarveg vegna snjóflóðahættu. Nokkur atvinnuhús undir Seljalandshlíð á Ísafirði hafa verið rýmd vegna þessa. Einnig er óvissustig í gildi á Norðurlandi vegna snjóflóðahættu en rýming stendur enn yfir á bænum Steinaflötum. Hann var rýmdur í gær eftir mjög stórt snjóflóð í grendinni. Nýlega féllu tvö snjóflóð við Siglufjörð sem varnargarðar við bæinn stöðvuðu að sögn Gests Hannsonar ofanflóðasérfræðings á svæðinu. „Þetta er þarna við þennan leiðigarð sem er kallaður Stóri-Boli, sem er þarna sunnan við bæinn ásamt Litla-Bola sem kemur norðan við Jörundarskálina. Úr Jörundarskálini hefur fallið í nótt töluvert stórt flóð sem nær nánast niður í tjörnina sem er þarna ofan við þjóðveginn í áttina að Héðinsfjarðargöngunum. Svo fellur annað flóð úr Strengsgili sem er, sem sagt, sunnan við Stóra-Bóla og það nær ofan í tjörnina sem er þarna ofan við við veginn, gamla veginn sem liggur við Steinaflatir.“ Hann segir hættu ekki hafa verið á ferð sem betur fer. Lukkulegt sé búið var að gefa út aðvörun á svæðinu og engin umferð á þeim slóðum. „Jörundarskálin fríar okkur alveg við tjón eða skaða í bænum. Það fer baraþarna niður á leirurnar. En ,eiðigarðurinn, hann náttúrulega beinir þessu frá bænum og mannvirkjunum þarna í kring. Ég sá að það var þarna tjón frá Jörundarskálinni af flóðinu, það hafa rifnað upp einhverjar hríslur. Einhver tré og þvíumlíkt sjáanleg þarna í flóðajaðrinum. Þannig að þetta hefur eitthvað tekið með sér. Það hafa einhverjar girðingar og svoleiðis skemmst.“ Hann segir að nokkrar spýjur úr hlíðinni hafi einnig skotið upp kollinu. „Það er lélegt skyggni og við sjáum illa til og það má alveg búast við að við sjáum þegar það birtir að það sé nú einhvers staðar svona spýjur og flóð sem eru þá fallin,án þess að við vitum af því.“
Veður Snjóflóð á Íslandi Fjallabyggð Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Erlent Fleiri fréttir Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Sjá meira