„Þetta er ekkert grín“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 14. mars 2026 14:34 Snjóflóðið leysti rosalegan kraft úr læðingi en hér má sjá Gest Hansson ofanflóðasérfræðing við mælingar. Björgunarsveitin Strákar Ofanflóðasérfræðingur á Siglufirði segist aldrei hafa séð annað eins á þeim slóðum og vísar þar til stærðarinnar snjóflóðs sem féll í nótt. Mikil lukka er að enginn hafi verið á ferli þegar það féll. Ískyggilegt er að sjá snjóflóðið innan við kílómetra frá byggð.
Lýst hefur verið yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og hafa íbúar í einu húsi á þekktu hættusvæði í dreifbýli í Siglufirði verið beðnir um að yfirgefa heimili sín á meðan óvissustig varir. Talsverð ofankoma og skafrenningur hefur verið á Tröllaskaga og Vestfjörðum undanfarna daga í norðlægum áttum og hafa nokkur snjóflóð fallið. Til að mynda féll mjög stórt snjóflóð úr Selskál skammt utan við Siglufjörð í nótt en veginum hafði þá verið lokað vegna snjóflóðahættu og færðar. Snjóflóðið nær yfir nokkur hundruð metra og virðist nokkrir metrar á hæð. Gestur Hansson, ofanflóðasérfræðingur var að störfum við að mæla snjóflóðið þegar fréttastofa sló á þráðinn til hans en hann veit ekki til þess að stærra flóð hafi fallið á svæðinu. „Þetta eru sennilega tvö snjóflóð sem hafa fallið hérna á sitthvorum tímapunktinum, líklega stutt á milli þeirra. Sennilega mjög stutt á milli þeirra samt. Fyrra flóðið fellur þarna niður á veginn og síðan ofan í sjó niður þetta Selgil. Mér sýnist allavega vera farnir þrír ljósastaurar. Ég held að það séu 50 metrar á milli þeirra. Síðan kemur annað flóð í kjölfarið sem lendir á fyrra flóðinu og klofnar þar í tvennt og sem sagt flæðir þarna eftir veginum suður eftir í átt að bænum.“ Unnið er að því að ryðja veginn.Björgunarsveitin Strákar Hann segir flóðið þykkt og rakt og segist ekki vita til þess að stærra flóð hafi fallið á þessum slóðum. „Þetta er með stærri flóðum sem ég hef séð. Ég hef aldrei séð svona flóð koma út úr þessari skál. Þetta hefur farið í norðvestan áttinni og í frekar hægum vindi. Það er gríðarleg úrkoma á þessum tíma.“ Hann segir að það megi sjá skýrt brot í skálinni þar sem flóðið hefur fallið niður. Snjóflóðið hafi leyst gríðarlegan kraft úr læðingi. „Þetta virðist hafa náð töluvert mikilli ferð því að þarna í gilinu neðst er mjög þröngt í því og það er svona að sprautast upp á kantana þarna. Þannig að skálin hún fer öll og þú veist, hlíðin þarna sem snýr að veginum og firðinum sjálfum.“ Hann segir það gífurlega lukkulegt að veginum hafi verið lokað áður en snjóflóðið féll. Illa hefði farið ef einhver hafði verið þar á ferli. „Sem betur fer.“ Snjóflóðið gekk alla leið út í sjó.Björgunarsveitin Strákar Hann telur ekki mikla hættu á ferð úr skálinni eins og er. Mikilvægt sé þó að hafa varann á öðrum stöðum í grennd. „Fólk ætti að horfa vel í kringum sig ef það er að fara til fjalla eða keyra undir svona giljum. Þetta er ekkert grín. Svo á hann að snúast til norðaustan í nótt og þá náttúrulega breytast allar forsendur.“
Veður Snjóflóð á Íslandi Fjallabyggð Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fleiri fréttir Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum Sjá meira