Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 14. mars 2026 12:06 Um 50 framleiðendur munu kynna vörur sínar og bjóða upp á smakk í Hörpu um helgina á Matarmarkaði Íslands. Aðsend Þurrkuð lambahjörtu, handgerð páskaegg, argentískar skrautsmákökur, grænlensk grálúða og reykt þorskhrogn eru meðal þess, sem boðið verður upp á í Hörpu um helgina á Matarmarkaði Íslands. Um 50 framleiðendur kynna vörur sínar og bjóða upp á smakk.
Það er mikið um að vera í Hörpu í dag og á morgun á matarmarkaði Íslands þar sem bændur, sjómenn og smáframleiðendur af öllu landinu koma saman með fjölbreytt úrval af matarhandverki til að kynna fyrir gestum og gangandi. Þetta er því kjörið tækifæri til að hitta framleiðendur og fræðast um vörur þeirra og fá að smakka. Vinkonurnar Hlédís Sveinsdóttir og Eirný Ósk Sigurðardóttir hafa yfirumsjón með matarmarkaðnum og hlakka til helgarinnar. „Við höldum Matarmarkað tvisvar á ári allavegana, það er jólamarkaðurinn og svo vormarkaður. Okkur finnst alveg full ástæða til að fagna vorinu með svona matarhátíð,” segir Hlédís og heldur áfram. „Við erum með allt frá kjöti yfir í sætindi, það er reyndar mjög mikið af handgerðum sætindum núna enda eru að koma páskar. Við erum alveg með páskaegg og alls konar handgert konfekt og argentískar smákökur og ég veit ekki hvað og hvað. Það er fiskur, það er kjöt, það er sætt, það er salt, það er súrt, það er bara nefndu það. Það eru hér forréttir, aðalréttir, eftirréttir, þú getur bara klárað páskana í Hörpu um helgina,” segir Hlédís skellihlæjandi. Hér má sjá þurrpylsu, sem er 98% ærkjöt, sem verður kynnt um helgina.Aðsend Védís segir að framleiðendur matvaranna komi víða af landinu og langflestir gefi smakk enda mikilvægt að sambandið á milli framleiðenda og neytenda sé gott. Hrossakjötið verður á sínum stað í Hörpu um helgina.Aðsend „Mér finnst það fallegasta við markaðinn að neytendur fá á honum tækifæri til að spyrja. Hvað er þetta, af hverju ertu að gera þetta, hvað er á bak við vöruna, hvar eru að framleiða þetta og allt það,” segir Hlédís að lokum. Hlédís Sveinsdóttir (t.v.) og Eirný Ósk Sigurðardóttir, sem eru allt í öllu í Hörpu um helgina á Matarmarkaði Íslands.Aðsend Facebooksíða Matarmarkaðs Íslands
Reykjavík Harpa Matur Páskar Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Fleiri fréttir Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Sjá meira