Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Lovísa Arnardóttir skrifar 13. mars 2026 10:56 Enginn komst fram hjá flutningabílnum sem var fastur á Holtavörðuheiðinni. Landsbjörg Björgunarsveitir á Norðurlandi aðstoðuðu 25 manns niður af Holtavörðuheiði í gærkvöldi. Meirihlutinn fékk gistingu í Reykjaskóla. Björgunarsveitir fóru aftur á heiðina í morgun til að losa bílana sem þar sátu fastir, alls festust fimm fólksbílar og einn flutningabíll í óveðri í gær.
Allir fólksbílar eru nú lausir, samkvæmt tilkynningu Landsbjargar, og komnir niður af heiðinni en einn flutningabíll er enn fastur og unnið er að því að losa hann. Gular viðvaranir voru í gildi í gær á svæðinu vegna norðan hríðar. Þær runnu út í morgun. „Allt í allt voru 25 manns fluttir í bílum björgunarsveita niður af heiðinni í gærkvöldi, einn sem fór suður af en tuttugu og fjórir voru fluttir niður af heiðinni norðanverðri,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörg. Frá björgunaraðgerðum björgunarsveitar í gær. Eins og má sjá er skyggnið hrikalegt. Landsbjörg Þar kemur fram að ferðamennirnir hafi fengið næturgistingu í Reykjaskóla. „Húsráðendur opnuðu dyr sínar og komu lúnum ferðalöngum í uppbúin rúm. Það má því segja að nokkurs konar fjöldahjálparstöð hafi verið opnuð þar í gær. Auk þessa var þó nokkrum fjölda fólks hjálpað niður í eigin bílum í gær,“ segir í tilkynningunni. Björgunarsveitir aðstoðuðu við að losa bíla og koma þeim af heiðinni. Landsbjörg Flutningabíllinn ekki losaður auðveldlega Í tilkynningu segir að í svokallaðri Hæðarsteinsbrekku hafi setið fastur flutningabíll en fram hjá honum var ekkert farartæki fært og ljóst að hann verður ekki losaður auðveldlega. „Nú er verkefnið að flytja úr Reykjaskóla aftur bílstjóra þeirra bíla sem skildir voru eftir og koma þeim í gang og losa svo ruðningstæki Vegagerðarinnar geti opnað veginn. Alls voru skildir eftir fimm fólksbílar auk flutningabílsins sem sat fastur í Hæðarsteinsbrekku.“ Fimm fólksbílar voru fastir og einn flutningabíll. Landsbjörg
Veður Færð á vegum Húnaþing vestra Björgunarsveitir Ferðaþjónusta Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Sjá meira