Munaði litlu að uppalinn Bodö-maður missti af Evrópuævintýrinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2026 11:01 Patrick Berg, fyrirliði Bodö/Glimt, talar við sína menn fyrir leikinn á móti Sporting í Meistaradeildinni, leik sem vannst síðan 3-0. Getty/Martin Ole Wold Patrick Berg er fyrirliði norska fótboltafélagsins Bodö/Glimt sem hefur slegið í gegn í Meistaradeildinni á síðustu vikum og er nú í lykilstöðu með að komast áfram í átta liða úrslitin. Það munaði þó litlu að hann hefði misst af þessu mikla ævintýri með uppeldisfélagi sínu.
Þegar tilboðin bárust í sumar þurfti Patrick Berg að kalla saman fjölskyldufund en eftir hann hafnaði Berg meðal annars ábatasömu tilboði frá liði í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Berg og félagar í Bodö upplifðu enn eitt töfrakvöldið í Bodø á miðvikudagskvöld þegar liðið vann 3-0 sigur á Sporting og er því í frábærri stöðu fyrir seinni leikinn í Lissabon á þriðjudag. Fimm sigrar í röð í Meistaradeild Þetta var fimmti sigur Bodö í röð í Meistaradeildinni. Risar eins og Manchester City, Atlético Madrid og Inter hafa hver af öðrum lútið í gras í leikjum sínum á móti Bodö/Glimt. Hjarta liðsins er hjá fjórum leikmönnum í byrjunarliðinu sem voru einnig hjá félaginu þegar það féll úr úrvalsdeildinni árið 2016. Patrick Berg er gríðarlega mikilvægur fyrir lið Bodö/Glimt og á mikinn þátt í velgengni liðsins í Meistaradeildinni.Getty/Image Photo Agency Einn af þeim er fyrirliðinn Berg sem er uppalinn hjá félaginu og hefur spilað þar alla tíð fyrir utan eitt franskt ævintýri með Lens árið 2022 sem var svo stutt að hann missti ekki úr neitt tímabil með norska félaginu. Ekkert sem er stærra „Það er ekkert sem er stærra, að minnsta kosti fyrir mig, en að fá að vera með Bodø/Glimt í Meistaradeildinni, standa sig vel, komast áfram í útsláttarkeppnina og upplifa svona kvöld eins og þetta. Þetta er gríðarlega stórt,“ sagði Berg. Berg, Jens Petter Hauge og Fredrik Björkan hafa reynt fyrir sér erlendis en komið aftur heim. Nokkrir þeirra hafa ekki farið leynt með að það freisti að reyna fyrir sér utan landsteinanna aftur í framtíðinni. Leikmenn Bodö/Glimt hafa slegið í gegn í Meistaradeild Evrópu í vetur og eru komnir með annan fótinn inn í átta liða úrslit, eftir að hafa slegið út Inter og unnið 3-0 sigur í fyrri leiknum á móti Sporting.Getty/Francesco Scaccianoce Í sumar þurfti fyrirliðinn að taka afstöðu til eigin framtíðar þegar bandaríska liðið Chicago Fire var sagt hafa verið tilbúið að greiða honum um fimmtíu milljónir norskra króna í árslaun, 647 milljónir íslenskra króna og fjórum sinnum meira en fyrirliði Bodö/Glimt var með í laun árið 2024, samkvæmt norskum skattskrám. „Auðvitað verður maður að íhuga það þegar raunverulegur áhugi kemur fram og það lítur út fyrir að hlutirnir séu næstum því að ganga í gegn,“ sagði Berg við Nettavisen þegar Glimt var nálægt því að semja við MLS-félagið um sölu á honum í sumar. Líður mjög vel hjá Glimt „Þá verður maður að taka fund með fjölskyldunni um hvað vegur þyngst. Ég hef verið mjög skýr allan tímann um að mér líði mjög vel hjá Glimt og hef það alls ekki slæmt fjárhagslega hér heldur,“ sagði Berg. Þegar blaðamaður norska ríkisútvarpsins spyr hvað hann hugsi um ákvörðunina í dag, svarar hann: „Ég er allavega mjög ánægður með að vera leikmaður Bodø/Glimt núna. Það get ég sagt. Og gríðarlega stoltur af því að fá að taka þátt í því sem við höfum áorkað núna í Meistaradeildinni. Það er mjög, mjög gaman að vera með í þessu,“ sagði Berg. Hefði verið sorglegt Carl-Erik Torp, sérfræðingur NRK, fær hroll við tilhugsunina um hvað hefði getað gerst. „Það hefði verið sorglegt ef þessi saga hefði verið skrifuð án Patrick Berg. Hann er hjartað og heilinn á bak við flest sem gerist úti á vellinum,“ sagði Torp.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Norski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Sjá meira