„Það er kannski einn sem má svindla“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2026 11:01 Kylian Mbappe og Vinicius Junior fagna marki saman en sumum þykir Real Madrid ekki getað spilað þeim saman á móti bestu liðum Evrópu. Getty/Diego Souto Real Madrid saknaði ekki mikið stórstjörnunnar Kylian Mbappé í 3-0 sigri sínum á Manchester City í gær í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Þessi frammistaða liðsins án Mbappé kallaði á kenningar hjá sérfræðingi í Meistaradeildarmörkunum. „
Hvað sýnir þetta okkur? Er þetta kannski ákveðin vísbending um það að þrátt fyrir markaðsfjöldann og þrátt fyrir það sem Mbappé gefur þessu Real Madrid liði? Þetta er kannski vísbending um það að það sé ekki pláss fyrir Vinicius og Mbappé, báða í liðinu, til þess að koma Real Madrid alla leið,“ sagði Baldur Sigurðsson. Hann segir að það bitni svo mikið á liðinu í varnarleiknum að vera með báða þessa lúxusleikmenn í liðinu. „Þeir geta alveg saltað einhver lið heima fyrir í þægilegum leikjum en þegar þú ert kominn á þetta stig á móti þetta góðum liðum í keppninni, þá er þessi varnarvinna svo gríðarlega mikilvæg,“ sagði Baldur. „Það er kannski einn sem má svindla en þegar þú ert kominn með tvo þá er það kannski orðið of mikið. Þetta er ákveðið verkefni þegar Mbappé kemur til baka,“ sagði Baldur. Kjartan Atli Kjartansson benti á að Paris Saint Germain vann ekki Meistaradeildartitilinn þrátt fyrir að vera bæði með Messi og Mbappé. „Þú þarft tíu vinnuhesta ef einn á að fá að vera í lúxus. Níu og markmann og svo fær einn að söðla um,“ sagði Kjartan Atli. „Þetta var náttúrulega Toni Kroos og Luka Modrić á miðjunni og þá var erfitt að vera með Mbappé, Vinicius og stundum Rodrygo, labbandi um völlinn. Þannig að ég held það sé svona svolítið annað. Það er búið að yngja upp miðjuna,“ sagði Kjartan Henry Finnbogason og dró aðeins í land. Hér fyrir neðan má sjá þessa umræðu. Klippa: Umræða um Vini og Mbappe
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Körfubolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira