Reiknað með stormi vestantil og hríðarviðvaranir í gildi Atli Ísleifsson skrifar 12. mars 2026 07:09 Færð getur hæglega spillst og hríðarviðvaranir hafa verið gefnar út á Breiðafirði, Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra. Vísir/Vilhelm Alldjúp lægð skammt norðaustur af landinu stýrir veðrinu á landinu næsta sólarhringinn, en hún mun þó grynnast smám saman. Lægðin beinir norðvestlægri átt til landsins með ofankomu, einkum fyrir norðan.
Á vef Veðurstofunnar segir að það hvessi vestanlands í dag og megi reikna með staðbundnu hvassviðri eða stormi og snjókomu eða skafrenningi seinnipartinn, einkum á Vestfjörðum og á sunnanverðu Snæfellsnesi og svo einnig suðvestanlands í kvöld og nótt. Færð getur hæglega spillst og hríðarviðvaranir hafa verið gefnar út á Breiðafirði, Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra. Viðvaranir eru í gildi fram á kvöld á norðvestanverðu landinu.Veðurstofan Það dregur úr vindi og ofankomu á morgun en búast má samt við éljum í flestum landshlutum. Hiti verður um og yfir frostmarki að deginum. „Á norðanverðum Vestfjörðum, Ströndum, utanverðum Tröllaskaga og í Skagafirði er víða spáð 50–100 mm uppsafnaðri snjókomu fram á föstudag. Af þeim sökum má búast við umtalsverðri snjósöfnun í suðlæg viðhorf og að nýir, óstöðugir vindflekar taki að myndast. Líklegt er að snjóflóðahætta aukist á þekktum vegköflum,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðvestan 5-13 m/s, en 10-18 suðaustantil. Snjókoma eða él fyrir norðan, en slydda eða rigning við norðausturströndina. Úrkomulítið syðra. Hiti nærri frostmarki. Á laugardag: Vestlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s og él fyrir norðan, en bjart syðra. Frost 0 til 10 stig, kaldast í uppsveitum. Vaxandi austanátt og þykknar upp sunnanlands, en styttir upp víða norðanlands. Hlýnandi. Gengur í austan hvassviðri með snjókomu, slyddu eða rigningu sunnanlands um kvöldið. Á sunnudag: Gengur í allhvassa eða hvassa norðaustanátt með snjókomu eða éljagangi, en samfelld rigning eða slydda austast. Lengst af úrkomulaust suðvestanlands. Kólnar smám saman í veðri. Á mánudag: Norðan- og norðaustanátt með éljum víða um land, en þurrt að kalla suðvestanlands. Fremur svalt í veðri. Á þriðjudag: Útlit fyrir norðlæga átt með slyddu eða snjókomu, en þurrt syðra. Hiti nálægt frostmarki. Á miðvikudag: Minnkandi norðanátt með éljum og kólnandi veður.
Veður Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira