Er þetta boðlegt fyrir fullvalda þjóð? Kristján Vigfússon skrifar 11. mars 2026 19:02 Byggt á minni fyrri reynslu úr sendiráðinu í Brussel og sem formaður samgöngunefndar EFTA/EES í mörg ár finnst mér viðeigandi, gagnlegt og vonandi fróðlegt fyrir einhverja að fara yfir aðkomu Íslands, Noregs og Liechtenstein (EES-ríkjanna) að löggjafarferli Evrópusambandsins (ESB) nú þegar þjóðin stendur líklega frammi fyrir ákvörðun um hvort hefja skuli aðildarviðræður að nýju síðar á þessu ári. Ég skal leggja mig fram um að gera þetta eins einfalt og kjarnyrt og mér er mögulegt. Það má skipta löggjafarferli ESB í þrjú stig: svokallað undirbúningsstig (prepipeline acquis) – vinnslustig (pipeline acquis) og svo loks samþykktar gerðir/löggjöf (adopted acquis). Með (acquis) er átt við löggjöf ESB. EES-ríkin hafa í gegnum EES-samninginn aðgang að hluta af þessu þriggja þrepa ferli. Aðgangurinn á undirbúningsstigi byggir fyrst og fremst á 99. gr. og 100. gr. samningsins. Í þeim greinum er m.a kveðið á um að Framkvæmdastjórn ESB skuli leita ráða hjá sérfræðingum EFTA-ríkjanna líkt og eigin ríkja við undirbúning löggjafar. Á undirbúningsstiginu höfum við hvað mesta möguleika til að hafa áhrif á fyrirhugaða lagasetningu. Á því stigi hefur Framkvæmdastjórnin oft unnið heilmikla undirbúningsvinnu og haft yfirgripsmikið samráð við einstök ríki sem og helstu hagsmunaaðila innan aðildarríkjanna. Afrakstur þeirrar vinnu geta verið drög að einstökum gerðum (Regulations, Directives) en einnig svokallaðar Grænbækur (umræðuskjal) og Hvítbækur (stefnumörkun) um viðkomandi málefni en þar er einnig oft að finna álit sérfræðinga, vísindafólks og stofnana. Loks eru iðulega settar fram tillögur í Hvítbókum um hvert skuli stefna á viðkomandi málefnasviði. Hið formlega samstarf á þessu forstigi milli Framkvæmdastjórnarinnar og EES- ríkjanna fer síðan fram í vinnuhópum EES-ríkjanna, Fastanefnd EFTA og í sameiginlegu EES- nefndinni. Samvinnan felst þá m.a í því að fá fulltrúa og sérfræðinga ESB til að koma á fundi og kynna hugmyndir að nýrri löggjöf og eða kynna fyrirhugaðar breytingar á eldri löggjöf. Þar gefst EES-ríkjunum tækifæri til að taka umræðuna, fá skýringar og koma athugasemdum á framfæri. Á þessu forstigi geta vinnuhópar EES-ríkjanna sent inn athugasemdir til samráðshópa ESB og til fastanefnda Framkvæmdastjórnarinnar sem um málið fjalla. Í flestum tilfellum eigum við aðgang að þessum nefndum en þá án atkvæðisréttar. Allar formlegar athugasemdir fara í gegnum sameiginlegu EES-nefndina til Framkvæmdastjórnarinnar. Ef málin eru mjög mikilvæg fyrir hagsmuni EES-ríkjanna í heild eða einstakra ríkja fer málið oft í pólitískan farveg til að auka líkur á að geta haft áhrif á niðurstöðuna, en taka skal fram að sú leið er ekki hluti af hinu formlega ferli. Á forstiginu líkur formlegum áhrifum EES-ríkjanna í löggjafarferlinu. Næsta stig, vinnslustigið hefst með því að Framkvæmdastjórnin, byggt á áðurnefndu samráði, gengur frá lagatextanum sem í framhaldi er sendur til Evrópuþingsins (þingið) og Ráðherraráðsins (ráðið) þar sem unnið er áfram með drögin. Á þessu stigi gefst aðildarríkjunum tími til að vinna með þinginu og ráðherraráðinu og gera grein fyrir sínum hagmunum og vinna með öðrum aðildarríkjum í leit að lausnum. Það þarf ekki að taka það fram að á þessu stigi hafa EES-ríkin enga formlega aðkomu eingöngu aðildarríki ESB. Lokastigið felur í samþykkt lagatextans en það samþykki er alfarið í höndum þingsins og ráðsins með öðrum orðum kosnum fulltrúum aðildarríkja ESB. Í framhaldi hefst upptaka lagagerðarinnar í EES-samninginn. EES-ríkin hafa tækifæri til að reyna að ná fram efnislegum aðlögunum vegna sérstakra innlendra aðstæðna í upptökuferlinu sjálfu, sbr. 102. gr. EES-samningsins. Til að taka þetta saman þá hafa EES-ríkin takmarkaðan mótunarrétt í löggjafarferlinu og engan ákvörðunarrétt. Þess ber að geta að með auknum völdum Evrópuþingsins í löggjafarferlinu hefur aðkoma EES-ríkjanna orðið flóknari og veikst nokkuð frá tilkomu EES-samningsins 1992. Augljóst er að spyrja sig, hvort þetta fyrirkomulag þjóni hagsmunum Íslendinga nægilega vel og hvort farsælla sé að eiga sæti við borðið? Svari hver fyrir sig. Höfundur er lektor í Háskólanum í Reykjavík og doktor í stefnumótun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Halldór 22.08.2026 Halldór Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég skil ekki nei fólk Einar Steinþórsson skrifar Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar Skoðun Erfingjar og erfðarmál Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy skrifar Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Sjá meira
Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun
Skoðun Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson skrifar
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Heildarkostnaður aðildarviðræðna gæti samsvarað 300–700 kr. á mann á mánuði Valur Þráinsson Skoðun