Sterkt samfélag, öflugur skóli Jóhann Rúnar Pálsson skrifar 11. mars 2026 15:32 Umræða um skólakerfið hefur á síðustu árum orðið sífellt háværari. Skortur á fagaðilum, aukið álag, fjölbreyttari nemendahópar og áskoranir tengdar hegðun og líðan barna eru reglulega til umræðu. Því miður er það þannig að umræðan festist of oft í upptalningu á vandamálum án þess að horfa á samhengi þeirra eða ábyrgð fleiri aðila en skólanna sjálfra. Skólinn starfar ekki í tómarúmi. Hann endurspeglar samfélagið sem hann er hluti af, hraða þess, kröfur og væntingar. Þegar samfélagstaktur er orðinn hraður, álag mikið og lítið svigrúm til ígrundunar, birtist það óhjákvæmilega í skólastofunni. Lausnir verða því að taka raunhæf mið af heildarmyndinni, ekki aðeins af innra starfi skólans heldur einnig aðstæðum fjölskyldna og samfélagsins í kringum þær. Í þessu samhengi er mikilvægt að horfa til farsældar barna í víðum skilningi. Farsæld snýst ekki einungis um námsárangur heldur einnig um líðan, öryggi, tengsl og þátttöku. Skólinn gegnir þar lykilhlutverki, en getur ekki einn borið ábyrgð á öllum þeim þáttum sem hafa áhrif á velferð barna. Til þess þarf samhæfingu, skýra verkaskiptingu og raunverulegt samstarf milli skóla, heimila og samfélagsins í heild sinni. Gæði menntunar mun ekki byggja á stefnu stjórnvalda eða síbreytilegum mælikvörðum einum saman heldur fyrst og fremst af fagfólkinu sem starfar í skólunum. Þegar ákvarðanir eru teknar án raunverulegs samráðs við kennara og skólastjórnendur er hætta á að þær skili litlum árangri. Umbætur þurfa að byggja á faglegri þekkingu, trausti og sameiginlegri sýn, ekki einfölduðum samanburði sem tekur ekki tillit til ólíkra aðstæðna skóla. Ábyrgðin liggur þó að sjálfsögðu ekki einungis hjá skólunum. Mörk milli heimila og skóla hafa víða orðið óskýr og verkefni sem áður voru fyrst og fremst á forræði foreldra lenda í auknum mæli á kennurum. Farsæld barna byggir á því að ábyrgð sé sameiginleg og að samstarf heimila og skóla sé byggt á skilningi, gagnkvæmri virðingu og trausti. Á sama tíma hefur hlutverk skólans víkkað verulega. Skólum er ætlað að sinna fræðslu, forvörnum, félagsfærni, geðrænum stuðningi og ýmsum öðrum þáttum sem tengjast farsæld barna. Allt eru þetta mikilvæg verkefni en oft er þeim leyft að margfaldast án þess að fjármagni, tíma, mannafla eða úrræðum sé bætt við í samræmi við auknar kröfur. Nauðsynlegt er að samfélagið taki umræðuna um það hvað við viljum að hlutverk skólans sé og að við sjáum til þess að grunnurinn sé nægilega sterkur svo hann geti sinnt því hlutverki af fagmennsku. Það ætti að vera öllum ljóst hversu mikilvægu hlutverki skólinn gegnir fyrir bæði einstaklinga og samfélagið í heild. Skólinn mótast af fólkinu sem þar starfar og lærir en á sama tíma mótar hann það fólk sem þar vex og þroskast. Viljum við efla farsæld barna og ungmenna felur það í sér ábyrgð; á orðræðu okkar, viðhorfum og gjörðum. Orð geta styrkt og byggt upp en þau geta líka grafið undan sjálfstrausti og trú á eigin möguleikum. Málefnaleg og framsýn gagnrýni er mikilvæg. Hún getur hvatt samfélög og stofnanir til að þróast og forðast stöðnun. Niðurrif, tortryggni og þröngsýni hafa hins vegar þveröfug áhrif. Í umræðunni í dag virðist stundum sem við bregðumst við áhyggjum af stöðu barna og ungmenna með því að hækka þröskulda, þrengja mótin og setja þeim viðmið sem eru ekki alltaf sanngjörn. Í stað þess ættum við að beina kröftum okkar að því að rækta styrkleika barna og ungmenna, efla fjölbreytni og byggja upp sjálfstraust þeirra.Skóli sem styður við og eflir einstaklinga byggir upp sterkt samfélag og sterkt samfélag mótar öflugan skóla Höfundur er skólastjóri Þingeyjarskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar