Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson skrifar 9. mars 2026 14:31 Ég viðurkenni það að ég hafði ekki fylgst með listskautum fyrir vetrarólympíuleikana í Mílanó—Cortina d'Ampezzo á Ítalíu. Það hins vegar breyttist eftir að ég sá ótrúleg tilþrif hjá hinum 21 árs gamla bandaríska listskautaranum Ilia Malinin þegar hann tryggði Bandaríkjamönnum gull í liðakeppninni. Ekki nóg með það að hafa framkvæmt fimm fjórföld stökk þá lokaði hann sínu prógrammi með afturábak heljarstökki, en slíkt stökk hefur víst verið bannað í um 50 ár, eða frá því á Ólympíuleikunum í Innsbruck í Austurríki. Ég beið spenntur eftir því að sjá hann í einstaklingskeppninni. Hann var síðastur á svellið í frjálsa prógramminu og það var ekki frá því að maður fyndi fyrir spennunni í höllinni. Það var augljóst að beðið var eftir Ilia með mikilli eftirvæntingu. Hann byrjaði vel en þegar hann ætlaði að taka fjórfalt stökk gerðist eitthvað. Hann hikaði í miðju stökki og hætti við. Það var erfitt að fylgjast með því sem gerðist í kjölfarið, hann var áfram hikandi og datt tvisvar og áhorfendum var brugðið. Það sem kom fyrir Ilia Malinin minnti mig á það sem kom fyrir Simone Biles á Ólympíuleikunum í Tokyo 2020 þegar hún dró sig úr keppni í úrslitum í liðakeppni eftir einungis eitt stökk. Seinna sagði hún svo frá því að hún hefði upplifað það sem kallað er „twisties“, þannig að hún missti skynjun á rýmið í kringum sig þegar hún var í loftinu. Hugtakinu hefur verið lýst sem nokkurs konar meinloku (e. mentalblock). Í fimleikum getur slíkt ástand valdið því að einstaklingurinn missir skynjun sína á rými og plássi meðan hann er í loftinu, sem svo veldur því að viðkomandi missir stjórn á líkama sínum. Eftir fyrstu mistök Ilia sá ég hvernig líkamstjáningin breyttist og hann varð óöruggari og stífari, eitthvað sem ekki hefur sést áður hjá honum. Sérstaklega þar sem mikið sjálfstraust og öryggi hefur einmitt einkennt líkamstjáningu og frammistöðu hans. Það hefur óneitanlega verið gríðarleg pressa á honum og eflaust mörg sem bjuggust við því að hann myndi taka gullið. Það var áhugavert að heyra viðtalið við Ilia eftir keppni. Hann sagði frá því sem gerðist um leið og hann steig á ísinn og stillti sér upp í upphafsstöðuna: “ I just felt like all the just traumatic moments of my life really just started flooding my head”. Erfiðar hugsanir virðast hafa tekið athyglina sem síðan hafði áhrif á frammistöðuna. Hugsanir hafa áhrif á hegðun og líðan. Hvert við beinum athygli okkar hefur áhrif á hvernig okkur líður, hvernig við hugsum og hvort við náum árangri. Hugsanirnar hafa líka áhrif á líkama okkar. Afreksíþróttafólk er útsettara fyrir ýmsum alvarlegum andlegum veikindum, einmitt vegna þeirrar gríðarlegu pressu sem er í umhverfi þeirra. Heimur afreksíþróttafólks er streituvaldandi þar sem samkeppni um að skara fram úr og kröfur um árangur eru gríðarlega miklar. Ilia Malinin hefur skarað fram úr í sinni íþróttagrein og oft verið talað um „generational talent“ í því samhengi. Slíkum ummælum fylgir mikil pressa sem síðan getur haft ýmis áhrif. Rannsókn hafir einmitt sýnt þetta, að andleg veikindi eru algeng meðal afreksíþróttafólks. Afreksíþróttafólk hefur í auknum mæli opnað sig um þetta og svo virðist sem aukin umræða og vitundarvakning hafi verið um andlega líðan íþróttafólks. Höfundur er sálfræðingur og ráðgjafi í mannauðsmálum hjá Lífi og sál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Skoðun Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reykjavík - Menningarborg á heimsmælikvarða Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Á kjördag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Til varnar Gísla Marteini og Borgarlínu Ingólfur Harri Hermannsson skrifar Skoðun Fæði, klæði, húsnæði Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Garðabær má ekki staðna Viðar Kristinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar