Setti heimsmet í hálfmaraþoni sem fær að standa í þetta sinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. mars 2026 13:47 Jacob Kiplimo sló heimsmetið í hálfmaraþoni. Geoff Stellfox/Getty Images Jacob Kiplimo bætti heimsmetið í hálfmaraþoni um heilar tíu sekúndur, þegar hann hljóp á 57 mínútum og 20 sekúndum í Lissabon í Portúgal í morgun.
Metið var áður í eigu Yomif Kejelcha frá því í hálfmaraþoninu í Valencia árið 2024. „Ég er svo glaður að hafa slegið heimsmetið. Eftir fyrstu tíu kílómetrana fann ég að það væri möguleiki. Ég hélt áfram og reyndi svo að bæta í hraðann síðustu tvo kílómetrana“ sagði Kiplimo eftir að hafa sett nýtt heimsmet. Hann fór fyrstu tíu kílómetrana á 27 mínútum sléttum, sem hefði verið nægur hraði til að klára hálfmaraþon á undir 57 mínútum en á endanum varð Kiplimo 20 sekúndum yfir 57 mínútum. Samkeppnin var hörð en alls fimm keppendur kláruðu hálfmaraþonið á innan við klukkutíma. Þarna sýndi Kiplimo og sannaði að hann er besti hálfmaraþonhlaupari heims í dag. Heimsmetið var áður í hans eigu, áður en Kejelcha sló það árið 2024. Árið 2025 hélt Kiplimo að hann hefði endurheimt heimsmetið, þegar hann hljóp hálfmaraþon 56 mínútum og 42 sekúndum, fyrstur í sögunni til að hlaupa hálft maraþon á minna en 57 mínútum. Tíminn fékk hins vegar ekki að standa því Kiplimo var dæmdur úr leik fyrir að vera of nálægt brautarbílnum, sem er sagt hafa hjálpað honum að stilla sig inn á hraðann. Heimsmetið er nú aftur komið til hans en Kiplimo á fimm af tólf bestu tímum sögunnar í hálfmaraþoninu. Næsta markmið hjá honum er að slá brautarmetið í heilu maraþoni í Lundúnum. Kiplimo á næstbesta tíma sögunnar í Lundúnamaraþoninu (2:02:23) en brautarmetið er í eigu Sebastian Sawe (2:02:05). Heimsmetið í heilu maraþoni setti Kelvin Kiptum (2:00:35) í Chicago árið 2023.
Hlaup Frjálsar íþróttir Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Sjá meira