Næsti kjarasamningur verður að vera VR samningur Gabríel Benjamin skrifar 6. mars 2026 16:47 Óvíst er hvort forsendur kjarasamnings sem var undirritaður fyrir tveimur árum munu standa, og því ljóst að stéttarfélög verða að undirbúa sig fyrir átök. Nú standa yfir stjórnarkosningar hjá stéttarfélaginu VR, þar sem ég er einn af tíu frambjóðendum. Fyrst og fremst óska ég félagsfólki að kynna sér frambjóðendur og nýta atkvæðisrétt sinn, en auðvitað vil ég verða fyrir valinu. Því legg ég hér fram sýn mína fyrir komandi kjaravetur. Ég hef verið í stjórn VR síðastliðin þrjú ár. Þegar ég hóf stjórnarsetu höfðum við í höndum okkar metnaðarfulla kröfugerð sem hafði verið unnin af starfsfólki, stjórn, trúnaðarráði og grasrótinni. Eftir framlengingu á fyrri samningum eftir covid-19 faraldurinn var markið sett hátt til að ná fram kjarasamningi sem hentaði kröfum VR fólks. Ráðist var í samflot nokkurra stéttarfélaga sem kallaðist breiðfylkingin. Fylgt var uppskrift Seðlabankans með launahækkunum lægri en verðbólgu með það að markmiði að hífa upp laun með lækkun stýrivaxta. Verðbólga átti síðan að lækka með samstilltu aðhaldi launafólks, atvinnurekanda, ríki og sveitarfélögum. En þegar leið á vinnu hinnar svokölluðu breiðfylkingu urðu markmið VR sífellt undir, eins og krafan um strangari forsenduákvæði. Úr varð að stjórn og bakland VR kaus um að ganga úr þessu förunauti, en skaðinn var þá þegar skeður, og samningi fyrrum félaga okkar var að mestu leyti þröngvað upp á okkur. Hótun Samtaka atvinnulífsins var að sætta okkur við þennan samning eða fá á okkur verkbann sem myndi senda 30.000 skrifstofufólk heim án launa. Blandaður ávinningur kallar á úrbætur Miðað við þessa frásögn mætti halda að ekkert gott hafi komið út úr þessum kjarasamningum, en svo er ekki. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir og hlutfallslega hærri hækkanir taxtalauna miðað við markaðslaun hafa skilað sér til þeirra sem þurfa mest á þeim að halda. En stýrivaxtalækkanir hafa að mestu staðið á sér, og áðurnefnda samstillta átak launafólks, atvinnurekanda, ríkis og sveitarfélög hvarf þegar reyndi á það. Gjaldskrár hins opinbera fór langt fram úr fyrri loforðum, sérstaklega þegar kemur að leikskólagjöldum, og með hækkandi verðbólgu hafa sum fyrirtæki neyðst til að hækka verð á meðan að önnur nýta sér stöðuna til að auka arð sinn enn fremur. Matvöruverð hefur til að mynda hækkað meira en laun, svo og hitaveituvatn hjá Veitum. Því finnst mér mikilvægt að huga að orðum verkalýðshetjunnar Joe Hill: „Ekki syrgja, skipuleggið ykkur!“ Það er einmitt þannig sem við í stjórn VR höfum nýtt síðasta árið. Í kjaramálanefnd höfum við farið yfir lærdóma kjarasamninga síðasta áratuga og hugað að hvernig við getum staðið okkur betur og fengið kjarasamning sem virkar fyrir okkar félagsfólk. Í þessu samhengi megum við leyfa okkur að setja markmiðið hátt. Breyting á leikskólagjöldum þar sem foreldrar eru píndir til að hafa börn í skemmri vistun ellegar borga mun hærri gjöld kallar á styttingu vinnuvikunnar og aukinn sveigjanleika. Hækkandi fermetragjald á höfuðborgarsvæðinu, fyrir fasteignaeigendur og leigjendur, færir fleiri félagsfólk í önnur sveitarfélög og kallar á fleiri úrræði fyrir þau sem sinna fjarvinnu. Þau sem sinna framlínuþjónustu og vinna vaktavinnu kallar á að hækka taxta svo þeir líkist því sem gerist hjá hinu opinbera. Ef við hefðum náð í gegn strangari forsenduákvæðum, eins og stefnt var að í síðustu samningalotu, hefði það sett meiri þrýsting á umsemjendur til að halda verðbólgu niðri. Og eftirfylgni með ákvæði kjarasamninga kallar á víðari heimildir vinnustaðaeftirlits til að heimsækja vinnustaði og ná beinni snertingu við félagsfólk okkar. Þetta er sú vinna sem ég vil halda áfram með sem formaður kjaramálanefndar. Í september kemur í ljós hvort verðbólgumarkmið haldist, eða samningar losna. Lítið má út af bregða, nú sér í lagi eftir að nýtt innrásarstríð er hafið í miðausturlöndum með tilheyrandi eymd, álagi á flóttamannakerfi og hækkandi olíuverði. Ef atvinnurekendum tekst að halda í feldinn og ríkisstjórn ræðst í róttækar aðgerðir þannig að verðbólga lækkar til muna vil ég halda áfram þessari vinnu til að undirbúa félagið undir samningalotu árið 2028. En ef verðbólga lækkar ekki nægilega og samningar losna er ég reiðubúinn til að hliðra til vinnu og beita mér af fullum þunga í samninganefnd félagsins. Hver sem staðan verður mun ég halda áfram að standa vörð um kaupmátt félagsfólks okkar, réttindi þeirra, mikilvægi vinnusambands, og skýrra skila milli vinnu og einkalífs. Ég vona að ég fái stuðning þinn til þess. Höfundur er stjórnarmaður hjá VR og situr í miðstjórn ASÍ. Hann fer með formennsku í kjaramálanefnd VR og framtíðarnefnd ASÍ. Hann er einnig neyðarvörður hjá Neyðarlínunni, faðir, og kattamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Kjaramál Mest lesið Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Við viljum ekki ölmusu, við viljum fá að koma heim Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Ekki í okkar nafni Hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundið jafnaðarfólk skrifar Skoðun Mannúðin sett í varðhald í brottfararbúðum Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Óuppfyllt loforð í húsnæðismálum í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun
Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun
Skoðun Eyja með stöðugt gengi, lítið atvinnuleysi og lága húsnæðisvexti Svanborg Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun
Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun