Gæti orðið vandræðalegt fyrir FIFA Valur Páll Eiríksson skrifar 7. mars 2026 11:03 Stefán Pálsson, sagnfræðingur. Vísir/Bjarni Útlit er fyrir að Íran segi sig úr heimsmeistaramóti karla í fótbolta í sumar sökum árása Bandaríkjanna og Ísraels. Það yrðu söguleg tíðindi og sagnfræðingur segir stöðuna geta orðið vandræðalega fyrir FIFA.
Tafarlaust hlé var gert á öllum fótboltakeppnum í Íran og víðar í Asíu eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á landið síðustu helgi. Strax vöknuðu spurningar um það hvort Íran sendi landslið sitt til keppni á HM í öðru árásarríkjanna en Íran átti fyrir höndum leiki í Bandaríkjunum á HM í sumar. Hitler sameinaði liðin og Thatcher brjáluð Það yrði sögulegt að Íran drægi sig úr keppni en stríðsátök hafa áður haft áhrif, til að mynda á landslið Austurríkis fyrir HM 1938, eftir innrás Þjóðverja. „Frægasta dæmið um það hvernig stríð hafi áhrif var fyrir HM í Frakklandi 1938. Þar var eitt allra sigurstranglegasta liðið Austurríki. Áður en kom að úrslitakeppninni var Austurríki innlimað í Þýskaland. Í kjölfarið ákvað Hitler að sameina landsliðin og niðurstaðan varð lið sem var slakara heldur en Austurríki og Þýskaland höfðu verið í sitthvoru lagi,“ segir Stefán Pálsson, sagnfræðingur og HM sérfræðingur í Sportpakkanum á Sýn. Á árum Falklandseyjastríðsins voru einnig erjur um þátttöku Englands og Argentínu árið 1982. „Ef við förum nær okkur í tíma væri helsta samsvörunin í Falklandseyjastríðinu. Bretar urðu mjög reiðir þegar Argentínumönnum var ekki vísað af HM á Spáni. Margaret Thatcher íhugaði að banna enska landsliðinu að mæta og keppa, þangað til einhver útskýrði fyrir henni að þá væri hún endanlega búin að þurrka út öll atkvæði sem hún hafði haft frá verkalýðsstéttinni í landinu,“ „En yfirvöld hjá FIFA tryggðu það í rauninni að það gæti ekki til þess komið að Argentína og England myndu mætast í keppninni,“ segir Stefán. Gætu mæst ef Íran tekur þátt Möguleg lausn sé að færa leiki Írans frá Bandaríkjunum en þá flækist staðan þegar lengra í mótið er komið og ljóst að Íran myndi spila þar í landi færi liðið áfram. Stefán bendir einnig á að miklar líkur séu á því að liðin hreinlega mætist, taki þau þátt. „Þetta er mjög sérstakt og auðvelda lausnin fyrir FIFA væri að nýta sér það að það eru fleiri gestgjafaþjóðir. Það væri kannski ekkert stórmál að færa þessa tvo leiki íranska landsliðsins sem eiga að fara fram í Bandaríkjunum til Kanada eða jafnvel til Mexíkó,“ segir Stefán og bætir við: „En það sem flækir málin pínulítið er að ef Íran og Bandaríkin, að því gefnu að bæði lið taka þátt, lenda í öðru sæti í sínum riðli, sem er ekki ólíkleg niðurstaða miðað við styrkleika liðanna, þá myndu þau mætast. Þá yrði fjandinn laus.“ Refsað fyrir að verða fyrir árás Flókin staða stendur nú frammi fyrir Gianni Infantino forseta, sem og öðrum stjórnendum FIFA. Rússland er til að mynda enn í banni frá fótbolta vegna innrásar í Úkraínu, en á móti hafa Ísraelar fengið að keppa án takmarkana þrátt fyrir framgang þeirra á Gaza-svæðinu. Allt bendir til þess að Íran taki ekki þátt sökum árása Bandaríkjanna en sérstök staða er uppi þar sem innrásarþjóðin er þá í raun að taka fórnarlamb árásarinnar úr leik. „Við skulum alveg gera okkur grein fyrir því að Infantino sem er búinn að veita Trump friðarverðlaun er ekki að fara að gera FIFA gjaldþrota og sjálfan sig að pólitískum útlaga með því að svipta Bandaríkin heimsmeistaramótinu. Við getum alveg gleymt því,“ „Það verður hins vegar mjög vandræðalegt fyrir FIFA ef sambandið þarf að refsa landi sem er ráðist inn í með því að reka það úr keppni. Ég er viss það að á þeim bænum eru menn biðjandi til æðri máttarvalda að Íranar leysi þá úr snörunni og taki þá ákvörðun sjálfir að mæta ekki til leiks,“ segir Stefán. Fleira kemur fram í viðtalinu sem má sjá í heild í spilaranum að neðan. Klippa: Sögulegt ef Íran tekur ekki þátt
FIFA Íran HM 2026 í fótbolta Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Íslenski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig Íslenski boltinn „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjáðu skalla Hjartar og allt tryllast Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Stjörnur Real Madrid léku sér í stórsigri á Malaga Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Ísak Snær skoraði í svekkjandi jafntefli Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Messi skoraði fjögur í stórsigri Inter Miami Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Sjá meira
Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Íslenski boltinn