Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Þórarinn Þórarinsson skrifar 6. mars 2026 13:23 Reynisfjara er gríðarlega vinsæll ferðamannastaður en þar bíða jafnframt margar hættur. Vísir/Vilhelm Landeigendur við Reynisfjöru hafa gert bráðabirgðaráðstafnir eftir að mikill öldugangur og stórstreymi eyðilögðu meðal annars öryggisbúnað, viðvörunarskilti og útsýnispall í síðustu viku.
Íris Guðnadóttir, einn landeigenda, segir ágang sjávar hafa skemmt útsýnispallinn sem stóð á fjörukambi, auk þess sem tjón varð á ýmsum búnaði, en tekist hafi að taka eitt öryggisskilti niður í tæka tíð. „Við höfum gert tímabundnar ráðstafanir á meðan við metum framhaldið og hvar nýr pallur muni rísa,“ segir Íris. Hún segir sandfjöru vera að myndast aftur en hún liggi þó um tveimur metrum lægra en fjörukamburinn. „Það fer því algerlega eftir sjólagi hvort öruggt sé að vera þar en fjörukamburinn er vel aðgengilegur og þaðan er gott útsýni yfir fjöruna, stuðlabergið, Dyrhólaey og brimið.“ Íris Guðnadóttir er einn landeigenda við Reynisfjöru.Vísir/Vilhelm/Einar Þá ætli landeigendur að setja upp bráðabirgðaöryggisskilti á kambinum og afmarka nálægðartakmörk með kaðli. „Ný öryggisskilti eru í framleiðslu og til stendur að byggja upp útsýnispall og öryggisbúnað með vorinu.“ Þar sem ljósabúnaður á svæðinu er óvirkur hvetja landeigendur fólk til þess að fylgjast með ölduspánni og aldrei fara lengra en að fjörukambi þegar viðvaranir eru rauðar. „Núna um helgina spáir alveg fimm til sex metra ölduhæð og hárri sjávarstöðu þannig að við áréttum bara að fólk haldi sig á fjörukambinum í rauðu ljósi.“
Reynisfjara Öryggi á ferðamannastöðum Mýrdalshreppur Ferðaþjónusta Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira