Innlent

Þjóðar­at­kvæða­greiðslan fer fram 29. ágúst

Árni Sæberg skrifar
Kristrún Frostadóttir, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formenn ríkisstjórnarflokkanna.
Kristrún Frostadóttir, Inga Sæland og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formenn ríkisstjórnarflokkanna. Vísir/Vilhelm

Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fer fram þann 29.ágúst, að því gefnu að þingsályktunartillaga þess efnis verði samþykkt. Mælt verður fyrir þingsályktunartillögunni í upphafi næstu viku.

Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi formanna ríkisstjórnarflokkanna rétt í þessu. Fundinn má sjá í beinni útsendingu í spilaranum hér að neðan. 

Stjórnarráðið hefur sett sérstakan upplýsingavef um þjóðaratkvæðagreiðsluna í loftið. 

Þurfa að koma málinu í gegn fyrir lok maí

Kveðið er á um að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fari fram í síðasta lagi á næsta ári í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna. Nýlega sagði erlendur fjölmiðill frá því að atkvæðagreiðslan gæti farið fram strax í ágúst.

Samkvæmt lögum getur þjóðaratkvæðagreiðslan í fyrsta lagið farið fram þremur mánuðum eftir að Alþingi samþykkir þingsályktunartillögu þess efnis.

Já eða nei?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, sagði á fundinum að í þjóðaratkvæðagreiðslunni verði spurt hvort halda eigi aðildarviðræðum áfram og svarmöguleikar verði einfaldlega já og nei.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, sagði að samningsstaða Íslands væri góð núna. Mikið rót væri í alþjóðamálum og Íslendingar hefðu oft nýtt tækifæri við slíkar aðstæður í heiminum. „Við teljum að akkúrat núna standi Ísland það sterkt,“ sagði forsætisráðherra.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra, sagði stefnu flokks síns skýra, hann styddi beint lýðræði og vilja þjóðarinnar.

„Sá spyr sem ekki veit,“ sagði hún. „Nú ætlum við að spyrja þjóðina okkar.“

Textalýsingu af fundinum má sjá í vaktinni hér að neðan:




Fleiri fréttir

Sjá meira
×