„Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 5. mars 2026 21:40 Einar Jónsson hefur eitthvað viljað ræða við dómarann Ramunas Mikalonis í leiknum í kvöld. vísir/Anton „Það er rosalega týpískt svar, vörn og markvarsla,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, aðspurður út í hvað skóp stórsigur þeirra manna gegn toppliði Vals í Olís-deild karla.
Lokatölur urðu 27-35 í leik þar sem Framarar gengu frá Valsmönnum í fyrri hálfleik. „Mér fannst Breki frábær og vörnin góð. Sóknarlega vorum við agaðir og gerðum vel það sem við lögðum upp með. Þeir refsuðu okkur eitthvað sem Valur eru góðir í og ég held bara heilt yfir, að vinna Val hérna á þeirra heimavelli þá þarftu að spila bara ógeðslega vel og ég held að heilt yfir höfum við bara spilað ógeðslega vel,“ sagði Einar um frammistöðu sinna manna. Fram leiddi með sex mörkum í hálfleik og oft getur reynt snúið að halda í góða forystu, sérstaklega gegn sterku liði eins og Valur er alla jafnan. Hvað sagði Einar því við sína menn í hálfleik? „Það er alltaf þessi tugga, að fá á sig áhlaup og þurfa að halda áfram og þeir koma af krafti og blablabla. Við í raun ræddum það að við þyrftum bara að halda áfram að spila okkar leik og það gekk vel í fyrri hálfleik. Ég þurfti ekki að segja mikið, fórum bara yfir nokkur atriði. Við vorum með of marga tapaða bolta í fyrri hálfleik, það var eini gallinn í okkar leik. Þar fyrir utan vorum við nánast að spila óaðfinnanlega.“ Tuttugasta umferð Olís-deildarinnar lauk í kvöld og var þessi umferð í raun sú fyrsta af þremur sem spiluð verður á einni viku. Með góðum úrslitum í lokaumferðunum geta Framarar híft sig upp úr sjöunda sætinu þar sem þeir sitja núna. Leikurinn í kvöld var allavegana góður forsmekkur af því sem mögulega koma skal. Aðspurður einmitt út í þetta framhald og möguleika Fram að fara ofar í töflunni, þá hafði Einar þetta að segja. „Örugglega. Eru ekki allskonar úrslit sem þurfa að fara okkur í hag ef við ætlum að fara eitthvað mikið hærra í töflunni? Veistu það ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu. Við eigum bara ÍBV á mánudaginn, það er bara næsti leikur. Við erum bara að reyna að bæta okkur með hverjum leiknum og reyna að koma inn í úrslitakeppnina af einhverjum krafti og þetta leit fínt út í dag. Við þurfum bara að halda haus og vera einbeittir áfram á verkefnið,“ sagði Einar að lokum.
Olís-deild karla Fram Valur Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira