Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Valur Páll Eiríksson skrifar 5. mars 2026 16:32 Hamilton er hress og kátur fyrir komandi leiktíð. Allt annað var að sjá hann stóran hluta síðasta árs. Quinn Rooney/Getty Images Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilson segist mæta tvíefldur til leiks á komandi tímabili í Formúlu 1 eftir strembið fyrsta ár með Ferrari í fyrra.
Hinn 41 árs gamli Hamilton skipti frá Mercedes yfir í Ferrari fyrir síðasta tímabil og átti vægast sagt strembið ár. Hann komst aldrei á pall og mátti greina sífellt meiri gremju og sjálfstraustsleysi eftir því sem á tímabilið leið. Um helgina hefst annað tímabil hans með þeim rauðu og segist hann hafa nýtt tímann á milli leiktíða til að rétta sig af. „Fríið var mjög jákvætt. Þetta er ekki mitt fyrsta ródeó og þetta snýst um að snúa hugarfarinu við sem er ekki alltaf einfalt. Ég vil halda í jákvæðnina og allur veturinn fór í að finna það,“ segir Hamilton. „Það kom að miklu leyti frá æfingum sem hófust á fullu strax á jóladag. Ég trúi á sjálfan mig og ég veit að ég legg meiri vinnu á mig en allir aðrir í kringum mig,“ segir Hamilton enn fremur. Óveðursskýin sem héngu yfir honum á síðasta ári séu því horfin og sá Hamilton sem fylgdi þeim sé einnig horfinn á braut. „Ég held að ég hafi týnt sjálfum mér um stund. En sú persóna er horfin. Þú munt ekki sjá þessa manneskju aftur,“ segir Hamilton. Keppni hefst á nýju tímabili í Formúlu 1 í Melbourne í Ástralíu um helgina. Öllu verður því fylgt vel eftir á Sýn Sport Viaplay, heimili Formúlunnar á Íslandi. Dagskráin í Formúlu 1 þessa vikuna: 5. mars 1:30 Æfing 1 (Sýn Sport Viaplay) 5:00 Æfing 2 (Sýn Sport Viaplay) 6. mars 1:30 Æfing 3 (Sýn Sport Viaplay) 5:00 Tímataka (Sýn Sport Viaplay) 7. mars 3:30 Kappakstur (Sýn Sport Viaplay)
Akstursíþróttir Mest lesið Uppgjörið: KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær framlengingar Körfubolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Handbolti Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkur nældu í þrjú stig Fótbolti PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Fótbolti Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Handbolti Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Golf Fleiri fréttir Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Missti stjórn á yfir þrjú hundruð kílómetra hraða Hamilton ósáttur eftir „frekar hræðilega“ keppni í Japan Íhugar að hætta í Formúlu 1 Antonelli vann aftur og tók met af Hamilton Antonelli á ráspól en Verstappen brjálaður út í bílinn Ósáttur við umræðuna og gagnrýnir keppniauta Mercedes Ósáttur Verstappen lét reka blaðamann út: „Hypjaðu þig“ Í tómu tjóni og leita logandi ljósi að liðsstjóra Formúla 1 orðin „rafhlöðu heimsmeistaramótið“ Ítalinn ungi sótti sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Antonelli yngstur til að vera á ráspól í sögu Formúlu 1 Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Russell sakar Ferrari um eigingirni Ráðþrota Verstappen vonast til að Formúlan „verði skemmtilegri“ Tækluðu spurningu sem brennur á öllum eftir fyrstu keppni tímabilsins Verstappen tikkar af golulistanum Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti orðið meistari Komst hjá hörðum árekstri með ótrúlegum viðbrögðum Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Sjá meira