Bein útsending: Staða mæðra á vinnumarkaði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. mars 2026 08:15 Ýmislegt áhugavert er að finna í nýrri greiningu BHM á stöðu kvenna og mæðra á vinnumarkaði. Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars stendur BHM fyrir morgunverðarfundi um stöðu mæðra á vinnumarkaði. Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu föstudaginn 6. mars kl. 8:30–10:30.
Á fundinum verður leitast við að varpa ljósi á stöðu mæðra á vinnumarkaði, áhrif barneigna á tekjur þeirra og lífeyri og hvernig umönnunarbilið er að meiri hluta til brúað af mæðrum. „Þrátt fyrir að jafnrétti mælist mikið á Íslandi í alþjóðlegum samanburði eru áhrif barneigna á stöðu kynjanna á vinnumarkaði enn misjöfn. Rannsóknir sýna að umönnun og ólaunuð heimilisstörf dreifast ekki jafnt milli foreldra, og hafa konur yfirleitt meiri ábyrgð á þessum verkefnum. Þetta hefur bein áhrif á þátttöku þeirra á vinnumarkaði, tækifæri til framgangs í störfum og launaþróun til lengri tíma,“ segir í tilkynningu um fundinn. „Opinber stefnumótun — allt frá fæðingarorlofi til þjónustu við fjölskyldur og skipulags vinnustaða — mótar í raun þann ramma sem foreldrar lifa innan. Í dag aðlaga mæður þátttöku sína á vinnumarkaði fjölskyldulífinu í mun meira mæli en feður. Þess vegna er þörf á að ræða möguleikana og tækifærin sem við höfum til að brúa umönnunarbilið. Með samtakamætti hins opinbera og aðila vinnumarkaðarins má lagfæra stöðuna öllu samfélaginu í hag.“ Ný greining BHM. Dagskrá: 8:30 – Hús opnar - morgunverður. 9:00 – Opnunarávarp: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM 9:15 – Sigrún Brynjarsdóttir, hagfræðingur BHM. Fjallar um stöðu kvenna á vinnumarkaði – helstu tölur og dæmi sem varpa ljósi á stöðuna 9:30 – Sunna Símonardóttir, formaður Jafnréttisnefndar BHM og lektor við Háskólann á Akureyri. Fjallar um umönnunarbilið og áhrif þess á vinnumarkaðsstöðu foreldra. 9:45 – Guðný Björk Eydal, prófessor við Háskóla Íslands. Fjallar um fæðingarorlofskerfið, þróun þess, breytingar á lögum og árangur – og tengir við stöðu kvenna á vinnumarkaði. 10:00 – Pallborðsumræður - Fundarstjóri: Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM - Sanna Magdalena Mörtudóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur - Helga Björg Ragnarsdóttir, framkvæmdastýra Jafnlaunastofu - Henný Hinz, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ og formaður aðgerðahópsins Brúum umönnunarbilið
Fæðingarorlof Vinnumarkaður Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Ferðamenn koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Ferðamenn koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Sjá meira