Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Þórarinn Þórarinsson skrifar 5. mars 2026 07:47 Jón Baldvin segir, þvert á hugmyndir Dags B. Eggertssonar, af og frá að þeir Þorsteinn Pálsson hafi samið á laun um framgang EES-samningsins áður en Davíð Oddsson varð forsætisráðherra 1991. Vísir/Vilhelm Jón Baldvin Hannibalsson segir ekkert til í kenningum Dags B. Eggertssonar um að þeir Þorsteinn Pálsson hafi samið á laun um stjórnarmyndun og samþykkt EES-samningsins áður en Davíð Oddsson varð forsætisráðherra 1991. Þetta sé af og frá. „
Af og frá. Nei, nei,“ segir Jón Baldvin og hlær þegar hann segist í samtali við Vísi ekkert vita hvaðan söguskýring Dags er komin. Hann hafi ekki heyrt þetta áður og þetta sé ekki rétt.Vísir sagði frá því í fyrradag að Dagur hafi viðrað þessar hugmyndir sínar lauslega í Morgunblaðinu í minningarorðum um Davíð en síðan skýrt þær betur á Facebook.Þar sagðist hann, í ljósi andstöðu Sjálfstæðisflokksins og Davíðs, ekki hafa skilið stjórnarmyndunina 1991 almennilega fyrr en hann komst að því að áður en Davíð varð formaður hafi þeir Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin, ásamt Jóni Sigurðssyni, lagt grunn að þessari ríkisstjórn nokkru fyrir kosningarnar. „Það eru flestir eða margir búnir að gleyma því að EES-samningurinn varð til efnislega á tímabilinu frá 1989 til 1992. Það er að segja að mestu leyti í tíð ríkisstjórnar, vinstri stjórnar, Steingríms Hermannssonar,“ heldur Jón Baldvin áfram.Ófyrirséðir atburðir hafi síðan orðið til þess að samningurinn fékk ekki gildi fyrr en raunin varð. „Svisslendingar felldu samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu og þrjú ríki gengu í Evrópusambandið þannig að stofnanaramminn breyttist mjög á lokasprettinum. En efnislega var samningurinn fullgerður í tíð vinstri stjórnar Steingríms Hermannssonar.“ Skyndileg sinnaskipti Jón Baldvin leggur áherslu á að kosningarnar um vorið 1991 hafi eiginlega eingöngu snúist um EES-samninginn. „Þá brá svo við að Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag sneru baki við samningnum. Fundu honum allt til foráttu og fóru í harða kosningabaráttu þar sem þeir lýstu andstöðu við hann, þrátt fyrir að hafa borið ábyrgð á gerð hans.“ „Það eru flestir eða margir búnir að gleyma því að EES-samningurinn varð til efnislega á tímabilinu frá 1989 til 1992,“ segir Jón Baldvin.Vísir/Vilhelm Vinstristjórnin hafi síðan haldið velli með eins manns þingmeirihluta og hann hefði gjarnan viljað að hún héldi áfram. „En að því er mig varðar þá gekk ég úr skugga um það, á einni dagsstund, hvort ég gæti treyst því ef ríkisstjórnin héldi áfram, að hún tryggði EES-samningnum framgang á þingi.“ Fann lausnina hjá Davíð Niðurstaða hans hafi verið að í Alþýðubandalaginu og reyndar einnig í Framsóknarflokki væru nægilega margir algjörlega andsnúnir samningum til þess að hann gæti treyst sér í áframhaldandi samstarf. „Það var ástæðan fyrir því að ég sneri mér til Davíðs Oddssonar sem þá var nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins og lagði fyrir hann einfalda spurningu. Ég væri tilbúinn til stjórnarsamstarfs undir hans forystu gegn því að hann breytti stefnu Sjálfstæðisflokksins í stjórnarandstöðu, sem hafði verið í andstöðu við EES.“ „Þetta eru staðreyndirnar“ Jón Baldvin minnir á að fyrir utan Alþýðuflokk hans hafi allir stjórnmálaflokkar á Alþingi á einum tíma eða öðrum verið á móti EES. „Í stjórnarandstöðu var Sjálfstæðisflokkurinn á móti og Kvennalistinn var á móti. Í ríkisstjórninni voru Framsókn og Alþýðubandalag ábyrg fyrir samningnum en snerust gegn honum eftir kosningar. Alþýðuflokkurinn var eini flokkurinn, frá upphafi til enda, sem stóð með samningnum og ég var pólitískur verkstjórnarmaður bæði í vinstristjórninni og í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar síðar sem leiddi til þess að samningurinn var samþykktur naumlega á Alþingi 13. janúar 1993. Þetta eru staðreyndirnar. Allt annað er nú bara einhver svona hagræðing.“ Allir vildu Lilju kveðið hafa Jón Baldvin segir aðspurður að í ljósi hinnar miklu andstöðu á sínum tíma megi furða sig á því hversu margir vildu nú EES-liljuna kveðið hafa. Slíkt þurfi þó síður en svo að koma á óvart. „Það er býsna algengt í íslenskri pólitík. Það var mjög öflug hreyfing sem var á móti NATÓ og vildi herinn burt en sat svo í ríkisstjórn í sjö ár og sagði: Herinn kyrr og lifi NATÓ. En af einhverjum ástæðum þurrkaðist þessi hreyfing út af þingi.“
EES-samningurinn Andlát Davíðs Oddssonar Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum Sjá meira