Viðskipti erlent

Við­skipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Útflutningshagkerfi Suður-Kóreu er afar háð olíu frá Mið-Austurlöndum.
Útflutningshagkerfi Suður-Kóreu er afar háð olíu frá Mið-Austurlöndum. AP/Ahn Young-joon

Viðskipti á hlutabréfamarkaðnum í Suður-Kóreu voru stöðvuð í 20 mínútur í morgun, þegar hlutabréfaverð féll um meira en átta prósent.

Um er að ræða sjálfvirka varúðarráðstöfun, sem virkjast þegar veruleg lækkun verður skyndilega, til að koma í veg fyrir að verulegur óstöðugleiki skapist.

Þetta mun vera í fyrsta sinn sem öryggið virkjast frá því í ágúst árið 2024. Það mun gerarast aftur ef lækkunin, sem nú stendur í tíu prósentum, nær fimmtán prósentum.

Lækkunina má vafalítið rekja til ástandsins í Mið-Austurlöndum eftir árásir Bandaríkjanna og Ísrael á Íran en Suður-Kórea flytur inn mikið magn olíu frá svæðinu.

Olíuflutningar um Hormuz-sund eru sagðir hafa allt að því stöðvast síðustu daga.

Nikkei 225 vísitalan í Japan lækkaði um fjögur prósent í morgun og Hang Seng vísitalan í Hong Kong um þrjú prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×