Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2026 06:31 Jess McClain er skiljanlega mjög svekkt eftir að hafa hlaupið út úr brautinni vegna mistaka forystubílsins. @jesstonn Jess McClain virtist ætla að tryggja sér sigur á bandaríska hálfmaraþonmeistaramótinu 2026 þegar allt fór úrskeiðis án þess að hún ætti nokkurn þátt í því sjálf.
Forystubíll leiddi hana, Emmu Grace Hurley og Ednah Kurgat út af brautinni þegar aðeins um þrír kílómetrar voru eftir. Hin 34 ára gamla McClain hafði mikið forskot og virtist örugg með sigurinn en tapaði næstum því tveimur mínútum og féll niður í níunda sæti. Missti af tveimur og hálfri milljón króna Vegna þess missti hún af landsmeistaratitlinum og tuttugu þúsund dollara verðlaunafé samkvæmt opinberum úrslitum en það gera um tvær og hálfa milljón króna. View this post on Instagram A post shared by New York Post (@nypost) „Ég er enn að meðtaka þennan morgun en langar bara að þakka ykkur fyrir alla hlýjuna. Þetta er ekki „aumingja ég“ færsla. Ég er fullorðin kona og hef gengið í gegnum nóg í þessari íþrótt til að geta staðið upp aftur nokkrum sinnum,“ skrifaði McClain. „Ég var að nálgast það sem ég hélt að væri síðasta mílan á bandaríska meistaramótinu í hálfmaraþoni þegar ég fylgdi lögreglumótorhjóli, opinberum forystubíl og mótorhjóli fjölmiðla út af brautinni í um þúsund metra,“ skrifaði McClain. McClain var vissulega mjög súr og svekkt en fór varlega að láta reiði sína bitna á bílstjóranum sem klúðraði fyrir henni hlaupinu. Virkilega ömurlegt fyrir alla „Þetta er virkilega ömurlegt fyrir alla sem hlut eiga að máli. Enginn vill sjá svona niðurstöðu, aldrei. Mistök gerast og ég er viss um að þeim sem leiddu okkur líður hræðilega yfir þessu. Ég bara hata að það séu alltaf íþróttamennirnir sem gjaldi fyrir það (bókstaflega í peningum) aftur og aftur,“ skrifaði Jess McClain á samfélagsmiðla. „Eitthvað þarf að breytast og það þarf að vera til staðar öryggisráðstafanir fyrir íþróttamenn sem eru þarna úti að gera sitt allra besta á keppnisdegi. Einhver þarf að láta sig þetta nógu miklu varða til að gera eitthvað, hvað sem er. Ég elska þessa íþrótt svo mikið og vil bara hjálpa til við að gera hana betri fyrir yngri atvinnumennina okkar og alla þá frábæru íþróttamenn sem koma munu,“ skrifaði McClain. Reynir að verða besta útgáfan af sjálfri sér „Ég hef lagt mikið á mig til að finna gleði í því að reyna að verða besta útgáfan af sjálfri mér og byggja upp sjálfsmynd sem er ekki bundin við eina frammistöðu eða niðurstöðu. Þetta hefur hjálpað mér að finnast ég sigra í hvert skipti sem ég fer yfir marklínu,“ skrifaði McClain. View this post on Instagram A post shared by Jess Tonn McClain (@jesstonn)
Frjálsar íþróttir Hlaup Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sjá meira