Samfélag ótta eða hugrekkis Sigurður Árni Reynisson skrifar 1. mars 2026 14:30 Ótti við útskúfun hefur fylgt mannkyninu frá upphafi samfélagsins. Á fornöld var refsingin skýr og sýnileg: menn voru gerðir útlægir, bannfærðir eða opinberlega niðurlægðir. Í dag eru aðferðirnar oft fíngerðari en áhrifin geta verið þau sömu. Fólk er ekki lengur sent út í skóg eða hrakið úr landi, en það getur misst mannorð, atvinnu, félagslegt net og stöðu sína á örfáum dögum. Kannski er stærsta afleiðingin þó ekki sú sem bitnar á einstaklingnum sem verður fyrir útskúfuninni heldur sú sem hefur áhrif á alla hina: við lærum að verða hrædd við að vera við sjálf. Þegar samfélag sér ítrekað dæmi um fólk sem fellur í ónáð fyrir orð, skoðanir eða mistök, þá myndast ósýnilegur agi. Enginn þarf beinlínis að segja: „Þú mátt ekki hugsa svona,“ því skilaboðin berast samt. Við fylgjumst með, metum áhættuna og byrjum smám saman að stilla okkur inn á það sem við teljum öruggast. Við lærum að tala varlega, sleppa sumum skoðunum í opinberu rými og stundum jafnvel að fela hluta af eigin reynslu. Þetta er mannlegt viðbragð þar sem enginn vill verða sá næsti sem lendir í kastljósinu. Þessi þróun skapar sérstakt ástand í samfélaginu: ytri einhug sem byggir ekki endilega á raunverulegu samkomulagi heldur á varfærni. Margir kunna að líta á þetta sem merki um aukna siðferðisvitund, en undir yfirborðinu getur verið að myndast þögn sem byggir á ótta. Þegar fólk þorir ekki lengur að viðurkenna mistök, viðkvæmar hugsanir eða flóknar skoðanir minnkar rýmið fyrir heiðarlegt samtal. Þá verður umræðan einfaldari, skarpari og stundum miskunnarlausari, því aðeins þeir sem eru tilbúnir að taka áhættuna halda áfram að tala opinskátt og þeir eru ekki alltaf þeir yfirveguðustu heldur þeir sem láta skoðanir sínar ráða ferðinni. Í gegnum söguna hefur félagsleg útskúfun oft verið réttlætt sem leið til að verja samfélagið. Stundum hefur hún sannarlega haft slíkan tilgang, sérstaklega þegar um alvarleg brot var að ræða. En mannkynssagan sýnir líka að mörg dæmi um útskúfun tengdust ekki raunverulegum glæpum heldur samfélagsstemningu, ótta eða fordómum. Fólk var útskúfað vegna trúar, kynhneigðar, þjóðernis eða einfaldlega vegna þess að það passaði ekki inn í ríkjandi fyrirkomulag. Þegar við lítum til baka sjáum við oft mjög skýrt hversu ósanngjörn þessi viðbrögð voru en á sínum tíma þóttu þau sjálfsögð og jafnvel siðferðilega rétt. Í dag teljum við okkur standa siðferðilega framar en fyrri kynslóðir, en spurningin er hvort eðlið hafi í raun breyst svo mikið. Tæknin hefur aðeins hraðað ferlinu. Samfélagsmiðlar gera það að verkum að dómur fjöldans getur fallið á örfáum klukkustundum og orðspor sem byggt hefur upp á áratugum getur brostið á einum degi. Í slíku umhverfi er skiljanlegt að fólk verði varfærnara. Það er ekki merki um skort á hugrekki heldur eðlileg viðbrögð við kerfi þar sem refsingin getur verið ófyrirsjáanleg og stundum langt umfram það sem réttarkerfið myndi dæma. Óttinn við að vera dæmdur hefur þó dýpri áhrif en við gerum okkur oft grein fyrir. Hann mótar ekki aðeins það sem við segjum opinberlega heldur einnig það hvernig við hugsum um okkur sjálf. Þegar við venjum okkur á að fela hluta af sjálfsmynd okkar byrjum við smám saman að fjarlægjast eigin sannleika. Við veljum öruggari útgáfu af okkur sjálfum, slípaðri og samþykktari, en jafnframt fjarlægari því sem við raunverulega erum. Þetta getur skapað innri spennu sem margir þekkja: tilfinninguna að þurfa stöðugt að gæta að sér, vigta orð og halda aftur af sér. Samfélag sem byggir á slíkum ótta missir ákveðinn kraft. Sköpun, nýjar hugmyndir og heiðarleg sjálfsskoðun spretta sjaldnast upp í umhverfi þar sem fólk óttast stöðugt að stíga út fyrir rammann. Framfarir hafa oft orðið til vegna þess að einhver þorði að hugsa öðruvísi eða segja það sem aðrir þögðu um. Ef við viljum samfélag sem þróast og lærir af eigin mistökum þurfum við að skapa rými þar sem fólk má gera mistök án þess að óttast ævilanga útskúfun. Þetta þýðir ekki að samfélagið eigi að líta fram hjá alvarlegum brotum eða hætta að setja siðferðileg mörk. Ábyrgð og afleiðingar eru nauðsynlegar í hverju samfélagi. Spurningin snýst fremur um jafnvægið: hvenær verður félagsleg refsing svo þung að hún hættir að þjóna réttlætinu og fer að skapa ótta sem bitnar á öllum? Þegar fólk sér að jafnvel smávægileg mistök eða gömul atvik geta haft gríðarlegar afleiðingar lærir fólk ekki endilega að verða betra fólk, það lærir að fela betur það sem gæti verið gagnrýnt. Kannski er því stærsta áskorunin sem nútímasamfélag stendur frammi fyrir ekki að verða strangara heldur vitrara. Að kunna að greina á milli þess sem krefst skýrrar ábyrgðar og þess sem krefst skilnings, samtals og möguleika á að bæta fyrir mistök. Samfélag sem gerir ekki ráð fyrir því að fólk geti vaxið og breyst verður fljótt stíflað samfélag, þar sem fortíðin festir fólk í stöðu sem það fær aldrei að komast út úr. Óttinn við að koma fram eins og maður er hverfur ekki með lögum eða reglum heldur með menningu sem gerir ráð fyrir mannlegum breyskleika. Þegar við sjáum að fólk fær tækifæri til að leiðrétta mistök sín, biðjast afsökunar og halda áfram, minnkar þörfin fyrir að fela sig. Þá verður heiðarleiki ekki áhætta heldur styrkur. Það er samfélag þar sem fólk þorir að segja: „Ég er ekki fullkominn en ég er tilbúinn að læra“ og veit að svarið verður ekki strax útskúfun heldur samtal. Í kennslustofunni minni finn ég stundum fyrir ákveðinni þögn innra með mér þegar umræðan berst að fólki í samfélaginu sem hefur gert mistök. Drengirnir spyrja: „Má hann þetta?“ „Er ekki búið að reka hann?“ „Á ekki að refsa honum?“ Og ég finn að ég þarf að vega orð mín vandlega. Ekki vegna þess að ég vilji fela sannleikann heldur vegna þess að ég vil kenna þeim meira en einfaldar niðurstöður. Ég vil ekki ala upp kynslóð sem lærir aðeins að dæma, heldur kynslóð sem lærir að skilja, greina og taka ábyrgð. Ég reyni að minna þá á að það fæðist enginn inn í hlutverk sitt sem fullmótaður einstaklingur. Hvorki listamenn, leikarar, forsetar né þingmenn vakna einn morguninn fullmótaðir. Við verðum til í gegnum reynslu, mistök, ákvarðanir og líka rangar ákvarðanir. Ef við trúum því, eins og við segjum börnunum okkar, að maður læri af mistökunum, þá hljótum við líka að trúa því að fólk geti vaxið. Annars eru orð eins og „maður lærir af mistökum“ aðeins orð án innihalds. Stærsta áskorunin í kennslu er kannski ekki að kenna hvað er rétt og hvað er rangt heldur að kenna hvernig á að hugsa um flókinn veruleika án þess að falla í fordóma eða sleggjudóma. Drengirnir sem sitja fyrir framan mig í dag verða meðal þeirra sem móta samfélagið á morgun. Ef þeir læra að horfa á heiminn eingöngu í svart-hvítum dómum munu þeir bera þá sýn með sér út í lífið. Ef þeir læra hins vegar að fólk getur bæði gert mistök og bætt fyrir þau, þá skapast samfélag þar sem ábyrgð og mannúð geta farið saman. Í grunninn snýst þetta um traust, traust til þess að samfélagið sé ekki aðeins dómarinn heldur einnig vettvangur lærdóms og breytinga. Ef traust ríkir minnkar sá ótti sem fær fólk til að fela sig. Ef það er ekki til staðar lærum við smám saman að lifa á varúðarstillingu, þar sem öruggasta leiðin er að sýna aðeins hluta af sjálfum sér. Kannski er raunverulega spurningin sem við skiljum eftir hjá næstu kynslóð er ekki hver hafi haft rétt fyrir sér, heldur hvort við kenndum henni að lifa í ótta við mistök eða að mæta þeim með ábyrgð, skilningi og hugrekki. Höfundur er mannvinur og kennari Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tækni Sigurður Árni Reynisson Mest lesið Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ólafur Ragnar Grímsson og Cherry-picking Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar Skoðun Kveðum niður gyðingahatur Guðmundur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann skrifar Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason skrifar Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Sjá meira
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar
Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar
Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar
Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar
Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar
Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun