„Algjör rússibani“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 28. febrúar 2026 17:37 Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, fagnar bikartitli á fyrsta tímabili sínu í starfi. Vísir/Anton Brink „Tilfinningin er geggjuð. Þetta var algjör rússíbani þessi leikur eins og við var að búast,“ sagði kampakátur Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, eftir sigur sinna kvenna á Haukum í bikarúrslitum í dag. Lokatölur 19-23 í sveiflukenndum leik.
Oft komu langir kaflar í leiknum þar sem annað hvort liðið var í bölvuðum vandræðum með að skora. Aðspurður af hverju leikurinn var jafn sveiflukenndur og raun bar vitni hvað varðar það, þá hafði Anton þetta að segja. „Þetta er bara bikarúrslit. Tvö frábær lið og Haukarnir unnu þetta í fyrra og við búnar að mæta þeim oft í vetur og hörku leikir. En ég fann það að ef við myndum komast í þetta móment að jafna þá myndum við taka þær.“ Valur var fjórum mörkum undir þegar korter var eftir og Haukar með pálmann í höndunum. Á þeim tímapunkti tekur Anton leikhlé og viðsnúningurinn hefst. Valur skoraði næstu sjö mörk og tryggði sér titilinn með þessum frábæra kafla. En hvað gerðist í þessu leikhléi? „Við fórum bara aðeins yfir hlutina og náðum að skerpa á nokkrum hlutum varnar- og sóknarlega og mér fannst það auðvitað virka og bara margar sem stigu upp.“ Eftir þetta umrædda leikhlé kom Thea Imani Sturludóttir inn í sóknarleik Vals, en hún hefur verið að glíma við meiðsli og lítið spilað undanfarna mánuði. Var þetta í fyrsta skipti sem hún kom inn í sóknarleik Vals í leiknum og jafnframt í fyrsta skipti í leiknum sem Valur tefldi fram örvhentum leikmanni í stöðu hægri skyttu í leiknum. Öll sóknarógn Vals virtist umbreytast við innkomu hennar og var Anton sammála því. „Já klárlega. Hún er með sína reynslu og sín gæði. Við erum auðvitað búin að spila mikið án hennar og svo hefur Þórey líka verið að leysa þetta af fyrir utan, en mestmegnis höfum við verið með rétthentar þarna eins og lungann úr leiknum í dag. En auðvitað hjálpar þetta. Mér fannst við bara þétta aðeins varnarlega og fengum markvörslu að sjálfsögðu frá Hafdísi og sóknarlega gerðum við vel á öllum sviðum og náðum að klára þetta,“ sagði Anton að lokum.
Powerade-bikarinn Valur Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira