Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Jón Þór Stefánsson skrifar 28. febrúar 2026 07:22 Lögreglan átti í nógu að snúast í nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöld eða nótt óljós tilkynning þar sem óskað var eftir hennar aðstoð. Á vettvangi greindi sá sem tilkynnti um málið að nágranni hans hefði ýtt í hann, slegið til hans og hótað honum. Meðan lögreglumenn voru að ræða við manninn kom umræddur nágranni á vettvanginn með hnífa í buxnastrengnum sínum.
Þetta er á meðal þess sem greint er frá í dagbók lögreglunnar. Nágranninn er sagður hafa verið mjög ölvaður en ekki árásargjarn. Hann mun hafa verið handtekinn með fjölda hnífa á sér og vistaður í fangaklefa. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar tvö, sem sinnir verkefnum í Garðabæ og Hafnarfirði. Í miðborg Reykjavíkur var maður handtekinn eftir að hafa ítrekað kastað sér utan í lögreglubíla og verið með óspektir. Hann var sagður mjög ölvaður og vistaður í fangaklefa. Í umdæmi lögreglustöðvar eitt, sem sér um verkefni í Miðborginni, Vesturbæ, Austurbæ, og á Seltjarnarnesi, var tilkynnt um menn sem stálu slökkvitæki af veitingastað. Þeir höfðu notað það utandyra, en svo skilið það eftir og farið í burtu. Tilkynnt var um hóp drengja sem köstuðu grjóti í gegnum rúðu í grunnskóla í Reykjavík í umdæmi lögreglustöðvar þrjú, sem sér um mál í Kópavogi og Breiðholti. Þar var einnig tilkynnt um karl sem fannst utandyra slasaður á fæti og mjöðm. Talið er að hann hafi hrasað niður nærliggjandi tröppur. Hann var fluttur til frekari aðhlynningar á slysadeild.
Lögreglumál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira