Sakfelling hjúkrunarfræðingsins sé sorgleg Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 17:03 Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Vísir/Lýður Valberg Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir sakfellingu Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings sorglega. Áhrifin sem slíkur dómur kynni að hafa á stéttina séu gríðarleg. Hún gagnrýnir jafnframt að ákvæðum, sem varða rannsóknir lögreglu á atvikum í heilbrigðisþjónustu, hafi ekki verið fylgt eftir af stjórnvöldum. „
Þetta er sorglegt í alla staði,“ segir Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, aðspurð viðbragða við sakfellingunni. Í gær staðfesti Landsréttur sakfellingu Steinu fyrir manndráp af gáleysi fyrir hlut hennar að andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans árið 2021. Málið var fyrst tekið fyrir af héraðsdómi og síðan af Landsrétti. Steina hyggst áfrýja málinu til Hæstaréttar. Helga Rósa telur að dómurinn kunni að hafa áhrif á stétt hjúkrunarfræðinga í heild. Uggur sé meðal starfsmanna víða um land. „Maður óttast það að þetta hafi ekki góð áhrif. Réttaröryggi heilbrigðisstarfsfólks og hjúkrunarfræðinga er í rauninni í talsverðri óvissu,“ segir hún. „Þetta er allavega ekki til þess að auka aðsókn, það get ég verið nokkuð viss um.“ Setur út á að lagasetningu hafi ekki verið fylgt eftir Helga Rósa setur út á að ekki hafi verið fylgt eftir lagasetningu árið 2023 sem sagði til um að ríkissaksóknari ætti að setja fyrirmæli um rannsókn lögreglu á alvarlegum atvikum í heilbrigðisþjónustu. Þá hafi einnig setið á hakanum að skipa starfshóp sem greina á fyrirkomulag rannsókna á alvarlegum atvikum í heilbrigðisþjónustu og ákvarða hvaða aðferð sé best til að tryggja óháða málsmeðferð. Skipa átti hópinn í upphafi árs árið 2024 samkvæmt bráðabirgðaákvæði. Hún telur að skortur á fyrirmælunum hafi mögulega getað haft áhrif á rannsókn lögreglu á andláti í Vestmannaeyjum fyrr á árinu þar sem tveir heilbrigðisstarfsmenn voru handteknir. „Þótt ég þekki ekki nákvæmlega hvernig það mál allt saman er til komið þá er ljóst að það er enn þá verklag sem er óklárað og maður veltir alveg fyrir sér af hverju farið var fram með þessum hætti í þetta skipti og eftir hverju var þá verið að fara ef það er ekki til skýrt verklag eða fyrirmæli um það hvernig á að rannsaka þegar upp kemur atvik á heilbrigðisstofnun,“ segir hún. „Maður heyrir í samtölum við hjúkrunarfræðinga að það setur að þeim ugg, hvort þeim sé óhætt að mæta í vinnuna þar sem starfsumhverfi er víða langt frá því sem getur talið ásættanlegt.“ Hún tekur dæmi um bráðamóttökuna á Landspítalanum sem hefur verið mikið umfjöllunarefni undanfarnar vikur. Rúmanýting Landspítalans sé yfir hundrað prósent og allir séu stöðugt að vinna gegn bestu vitund. „Þú ert alltaf að vinna við aðstæður sem eru ekki eins og þær eiga að vera og síðan sé hægt að sækja til saka ef eitthvað fer úrskeiðis. Það getur ekki væri þægileg staða fyrir nokkurn mann.“
Heilbrigðismál Andlát á geðdeild Landspítala Rannsókn á andláti í Hraunbúðum í Eyjum Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Sjá meira