Reykjadalur fær tugi milljóna eftir allt saman en aðrir minna Árni Sæberg skrifar 27. febrúar 2026 14:44 Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra. Vísir/Vilhelm Inga Sæland segir það hafa verið sér kjaftshögg að lesa í fjölmiðlum að seglin yrðu dregin saman í Reykjadal í sumar vegna skorts á fjárframlögum frá ráðuneytum hennar og Ragnars Þórs Ingólfssonar. Þau muni styrkja samtökin um 58 milljónir króna, á sama tíma og skorið verður niður í fjárveitingum til annarra félagasamtaka.
Líkt og Vísir fjallaði um á þriðjudag greindi Gló stuðningsfélag, sem rekur sumarbúðir í Reykjadal, frá því að félagið hefði hefði ekki fengið áframhaldandi styrkveitingu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu og félags- og húsnæðismálaráðuneytinu til reksturs svokallaðra Ævintýrabúða og Vinahópa í sumar. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður ræddi málið við Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. „Ég bauð forsvarsmönnum Reykjadals til mín í gær. Ég var nú ekki upplýst um þetta allt saman fyrr en á þriðjudaginn var. Og þið getið nú rétt ímyndað ykkur, kona sem stofnaði heilan stjórnmálaflokk til að berjast gegn fátækt og taka utan um fatlað fólk, að þetta var nú kjaftshögg fyrir mig að lesa um þetta í fjölmiðlum.“ Fleiri hundruð styrkbeiðnir Þau Ragnar Þór myndu taka á móti forsvarsmönnum Glóar og undirrita samning um áframhaldandi stuðning, til þess að hægt verði að halda rekstri Reykjadals óbreyttum í sumar. Stuðningsfélagið muni fá til þess 58 milljónir króna. Forsvarsmenn annarra félagasamtaka sem fréttastofa hefur rætt við hafa lýst því að erfiðara sé nú en áður að sækja styrki til ráðuneytis Ingu. Hvað með önnur félagasamtök, hvernig standa þau mál? „Það eru fleiri hundruð fyrirliggjandi styrktarbeiðnir inni í ráðuneytinu. Þetta náttúrulega tekur sinn tíma og er allt í skoðun. Miðað við þrönga stöðu þá verður í rauninni mjög vandað til verka hvað þetta varðar.“ Framleiða ekki aukapeninga Er þá verið að skera niður miðað við fyrri ár? „Stór hluti af því sem gerðist fyrir sex árum, til dæmis þegar að Reykjadalur kemur inn, þá eru þetta svokallaðir Covid-peningar, fjármunir sem voru settir aukalega inn í okkar fjárreiður. Þannig að já, Covid-styrkirnir eru allir að falla niður núna, þannig eðli málsins samkvæmt miðað við hagræðingaraðgerðir og aðhaldskröfu ráðuneytanna, þá verður eitthvað undan að láta að við getum ekki framleitt neina aukapeninga.“ Hún sé ekki með nákvæma fjárhæð niðurskurðar í handraðanum enda sé mikil vinna í gangi í ráðuneytinu við að fara yfir allar styrkveitingar, lið fyrir lið. „En það er líka annað, miklar hagræðingar sem við erum líka að horfa í, eins og sameining stofnana og skipulagsbreytingar. Þannig að svona til lengri tíma litið, þá teljum við að við séum að draga mikið úr yfirbyggingu og bákninu sem slíku.“
Flokkur fólksins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira