Sterkir innviðir skapa sterkt samfélag Arna Rut Gunnarsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 13:02 Það er mikið talað um nauðsyn þess að efla atvinnulífið en kannski minna efnislega með hvaða hætti. Réttilega þarf að tryggja nægt lóðaframboð og að álögur séu hóflegar, en hins vegar eru sterkir grunninnviðir lykilatriði þegar kemur að því að efla atvinnulíf og skapa aðstæður fyrir stöðugan vöxt á Akureyri – svæðisborginni okkar. Þetta snýr m.a. að traustum samgöngum, áreiðanlegri raforku, sterku fjarskiptaneti og góðum heilbrigðis- og þjónustustofnunum sem styðja við rekstrarumhverfi fyrirtækja. Á Akureyri eru mikilvægir innviðir sem við þurfum að standa vörð um og efla enn frekar til að hámarka þau tækifæri sem þeir veita samfélaginu, til aukinna lífsgæða og öryggis. Með því að hafa samkeppnishæfar heilbrigðis- og menntastofnanir á Akureyri sem veita spennandi náms- og starfstækifæri, náum við fram auknum gæðum og getum laðað að okkur fólk til búsetu. Tækifærin liggja víðar, ekki síst á sviði öryggis- og varnarmála á Akureyri og með því að nýta þau vel höfum við möguleika á að efla samfélagið okkar enn frekar. Sveitarfélagið skapar trygga umgjörð Ríkið fer með almannavarnir á landinu öllu en sveitarfélög bera ábyrgð á almannavörnum í héraði í samvinnu við ríkisvaldið. Það eru því sveitarfélögin sem gegna lykilhlutverki við að skapa umgjörð sem tryggir öryggi borgara og viðbúnað, en góður viðbúnaður sveitarfélaga við neyð er grunnforsenda þess að viðbúnaður á landsvísu sé góður. Akureyrarbær gegnir því mikilvægu samhæfingarhlutverki milli ólíkra aðila auk þess að sveitarfélagið þarf að vera drifkraftur í almannavarnarstarfi. Tækifæri til fjárfestinga er til staðar Í nýlegri þingsályktunartillögu um öryggis- og varnarmál kemur fram að Ísland hafi ekki farið varhluta af þeim fjöláttaógnum sem eru nánast daglegt brauð víða um Evrópu. Staðan er viðsjárverð og þrátt fyrir að litla Ísland sé ekki staðsett á miðri víglínu, er öryggisógnin bæði raunveruleg og aðkallandi. Þetta hefur kallað á auknar aðgerðir og hefur Ísland skuldbundið sig til að verja 1,5% af vergri landsframleiðslu í öryggis- og varnartengd verkefni og ber m.a. að efla áfallaþol og styrkja þátttöku í svæðisbundnu samstarfi á norðurslóðum. Er þetta þá ekki ekki rétti tímapunkturinn til að staldra aðeins við og líta á staðreyndirnar – hvar er skynsamlegast að byggja upp og fjárfesta til að ná þessum markmiðum? Kemur þetta sveitarfélaginu við? Við höfum marga trausta innviði á Akureyri og erum með öflugasta öryggisviðbragðið utan höfuðborgarsvæðisins. Einn mikilvægasti hlekkur keðjunnar er án efa Sjúkrahúsið á Akureyri, sérgreinasjúkrahús með einu gjörgæsluna utan höfuðborgarsvæðisins. Sjúkrahúsið hefur lagalegar skyldur gagnvart landinu öllu vegna stöðu sinnar sem varasjúkrahús Landspítala. Aðrir mikilvægir hlekkir eru Heilbrigðisstofnun Norðurlands, miðstöð sjúkraflugs á Íslandi, fjölmennustu starfsstöðvar lögreglu og slökkviliðs utan höfuðborgarsvæðisins, starfsstöð sérsveitar Ríkislögreglustjóra, mjög öflugar björgunarsveitir, alþjóðaflugvöllur sem er nýbúinn að sanna gildi sitt og svo mætti áfram telja. Væri ekki næsta rökrétta skrefið að efla þetta viðbragð og innviðina enn frekar og tryggja að við getum veitt margþætt og óskert neyðarviðbragð allra viðbragðsaðila frá Akureyri? Að við höfum fullkomna aðstöðu til aðgerðarstjórnunar utan höfuðborgarsvæðisins, þannig að ráðherra geti t.d. nýtt heimild sem er þegar í lögum og fært þetta viðbragð hingað ef nauðsyn krefur? Það hefur verið rætt um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri í of langan tíma og þingsályktunartillögur þess efnis lagðar fram ítrekað, án árangurs. Ekki er þó um að kenna skorti á áhuga LHG, en herslumuninn vantar. Akureyrarbær getur lagt sitt af mörkum við að efla öryggi á norðurslóðum, það hefði víðtæk áhrif inn í samfélagið og talar beint inn í eflingu atvinnulífs. Við þurfum að tryggja framtíðar húsnæði fyrir alla viðbragðsaðila, og á þann hátt að samlegðaráhrif þeirra nýtist sem best – því þannig getum við veitt bestu mögulegu þjónustuna með skemmstum viðbragðstíma. Við þurfum að vera stórhuga, horfa lengra fram á veginn og slá skjaldborg utan um lykilinnviði. Þannig tryggjum við öryggi sveitarfélagsins, fjórðungsins og landsins alls. Málið er nefnilega stærra en ein þyrla og eitt sveitarfélag. Höfundur er framkvæmdastjóri fjarskiptafélags, svæfingarhjúkrunarfræðingur og skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar