Heitir því að rota og meiða McGregor illa ef þeir mætast Aron Guðmundsson skrifar 26. febrúar 2026 12:30 Langt er síðan Conor McGregor barðist síðast á vegum UFC. Vísir Carlos Prates, bardagakappi í veltivigtardeild UFC, telur að það væri fyrrverandi UFC meistaranum Conor McGregor hollast að mæta sér ekki í bardagabúrinu. Það myndi ekki fara vel fyrir Írann sem er orðaður enn á ný við endurkomu.
Undir lok síðasta árs tjáði McGregor sig um að hann hafi gengist undir upplýsandi meðferð og fundið guð og síðan þá, af myndskeiðum af samfélagsmiðlum að dæma, virðist hann vera kominn vel á veg í undirbúningi fyrir endurkomu í bardagabúrið á vegum UFC. McGregor hefur oft á tíðum komið sér í kastljósið undanfarin ár og oftar en ekki í miður skemmtilegum málum þar sem hann hefur verið ásakaður um kynferðisbrot og líkamsárásir. Nú er mikið rætt um að McGregor muni snúa aftur í bardagabúrið og hefur hann verið orðaður við bardaga á bardagakvöldið við Hvíta Húsið í Bandaríkjunum sem ráðgert er að fari fram þann 14.júní næstkomandi. Sjálfur sagðist Conor hafa samþykkt boð um að mæta lítt þekktum andstæðingi og að hann bíði nú eftir því að skrifa undir samninginn til að staðfesta bardagann. Töldu margir að um væri að ræða bardaga við Carlos Prates sem hefur unnið sex en tapað einum bardaga til þessa í UFC. Tapið kom á móti Íranum Ian Garry. Prates hefur ekkert heyrt af meintum bardaga gegn Conor McGregor og sendir Íranum varnaðarorð í myndbandi sem birtist á Instagram. „Í fullri hreinskilni tel ég að það muni reynast erfitt að láta þennan bardaga verða að veruleika. Conor hefur staðið utan bardagabúrsins núna í að verða fimm ár, algjörlega frá MMA og að þessum fimm árum liðnum tel ég að hann myndi ekki vilja mæta skemmtilegasta bardagakappanum í veltivigtinni.“ View this post on Instagram A post shared by Carlos Prates (@thenightmare_170) Bardagi við Conor McGregor heillar hins vegar Prates og segir að sá bardagi myndi ekki enda vel fyrir Írann. „Ég hef ekkert á móti honum en allir vita það. Ég veit það. Hann veit það. Ég myndi meiða hann illa og rota hann. Það væri ekki besta leiðin fyrir hann til þess að snúa aftur í bardagabúrið.“ McGregor varð á sínum tíma sá fyrsti til þess að verða ríkjandi meistari í tveimur þyngdarflokkum á sama tíma í UFC. Hann hefur hins vegar ekki barist síðan í júlí árið 2021 þegar að hann laut í lægra haldi gegn Dustin Poirier.
MMA Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Fleiri fréttir Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Berglind Katla fer í skóla í New York Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Ekki sofa á Valsmönnum Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Sextán tíma flug og spilað fyrir hádegi Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Daníel Leó til dönsku meistaranna „Hvers konar spurning er þetta?“ Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Dagskráin í dag: Íslendingarnir í Magdeburg í eldlínunni Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Lando Norris stofnar sitt eigið lið Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Sjá meira