Fjármögnun framhaldsskóla Róbert Örvar Ferdinandsson skrifar 26. febrúar 2026 08:33 Í fjaðrafokinu í kringum afsögn Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra hnaut ég um orð siðfræðingsins Henrý Alexanders Henrýssonar. Hann segir í viðtali við RÚV að Ásthildur hafi verið veikur ráðherra með takmarkaðan trúverðugleika og að ein „helstu rök fyrir afsögn séu þau að ráðherra þurfi að hafa styrk til að koma mikilvægum málum í gegnum þing og keppa um fjármagn við samráðherra. Ráðherra með laskaðan trúverðugleika sé mikill dragbítur á málflokk hvers ráðuneytis.“ (Rúv, 2025). Þessi ummæli lýsa hlutverki ráðherra sem hafa þá frumskyldu að fjármagna verkefni sem þeir eru ábyrgir fyrir. Í þessari grein er styrkur menntamálaráðherra mældur út frá hagstofumælikvarða sem kallast „útgjöld ríkisins til framhaldsskólastigsins sem hlutfall af vergri landsframleiðslu“ en til eru nokkuð óslitnar samanburðarhæfar mælingar aftur til ársins 1998 ef frá er dreginn stökkbreyttur húsaleigukostnaður ríkisreknu framhaldsskólanna 2019 (Unnar, 2020). Forsendur Til að glöggva mig betur á áhrifum starfandi menntamálaráðherra á fjárlagagerð greindi ég á hvaða haustþingum þeir störfuðu og eignaði þeim þá „heiðurinn“ af fjárhagsniðurstöðum sem birtust í bókhaldinu árið eftir. Ásthildur Lóa, Guðmundur Ingi Kristinsson og Inga Sæland eru utan þessarar greiningar en þar sem Guðmundur Ingi starfaði á haustþinginu 2025 myndi ég eigna honum heiðurinn af fjármögnun framhaldsskólanna á yfirstandandi ári, þ.e. 2026. Niðurstöður ársreikninga árið 2025 hafa ekki verið birtar almenningi en Ásmundur Einar Daðason væri helsti áhrifavaldur þeirrar fjárlagagerðar. Þessar niðurstöður eru paraðar saman við áðurnefndan mælikvarða sem kallast „útgjöld ríkisins til framhaldsskólastigsins sem hlutfall af vergri landsframleiðslu“. Til að fá samanburðarhæft mat í milljörðum nota ég landsframleiðsluna 2024 sem er metin 4,6 billjónir og dreg frá 3 milljarða húsaleiguok (húsaleiga á verðlagi 2024) þar sem það á við. Niðurstöðurnar eru sem hér segir: Tafla 1: Fræðslugjöld ríkissjóðs til framhaldsskóla sem hlutfall af vergri landsframleiðslu umreiknaðir í milljarða á verðlagi VLF 2024 og parað við ábyrgan ráðherra menntamála að frádregnu leiguoki. Niðurstöður Hér hefur verið farið yfir forsendur greiningarinnar og ekkert að vanbúnaði að birta árangurinn í milljörðum. Tafla 2: Meðalfjármögnun á verðlagi landsframleiðslu 2024 í milljörðum talið. Munurinn sem við sjáum í þessu árangursmati er það mikill að erfitt er að koma honum í skiljanlegt samhengi. Samkvæmt þessu skilaði Tómas Ingi Olrich hæstu fjármögnuninni til framhaldsskólanna en Ásmundur Einar lægstu. Lilja Dögg hækkaði húsleigu framhaldsskólanna í stað þess að takast á við aukinn fjölda erlendra nemenda í skólakerfinu. Illugi Gunnarsson stóð fyrir styttingu námstímans til stúdentsprófs en ekkert fjármagn kom í staðinn. Þá eru nokkur atriði sem stinga í augu. Munurinn á hæstu og lægstu fjárframlögum í töflunni er t.a.m. 23,8 milljarðar sem gefur okkur þá hugmynd fjárframlög til framhaldsskólans lækki að meðaltali um heilan milljarð ár hvert eða tíu milljarða á áratug. Með þessu áframhaldi stefnum við hraðbyri að framhaldsskólalausu Íslandi 2050! Til samanburðar má benda á að tekjufærsla fjárveitingar til Menntaskólans á Akureyri var rétt rúmlega einn milljarður árið 2024 (Fjársýslan). Það munar því tuttugu og fjórum Menntaskólum á Akureyri á milli Tómasar Inga og Ásmundar Einars þegar við skoðum fjárveitingarnar á núvirði þjóðarframleiðslunnar 2024. Endanlegar niðurstöður matsins má sjá á mynd 1 hér að neðan: Mynd 1: Meðalfjármögnun menntamálaráherra í milljörðum Hvað gerir Inga þá? Ljóst að erfitt verkefni býður Ingu Sæland við ríkisstjórnarborðið á næstkomandi haustþingi. Boðaður niðurskurður ríkisstjórnarinnar á framhaldsskólastiginu upp á 2,5 milljarða rímar illa við svæðisskrifstofurnar sem kosta einhverja svipaða upphæð. Þarna munar fimm milljörðum sem seint verða dregnir úr kerfi sem sinnir tæpast hlutverki sínu. Af þeim fimm þúsund nemendum sem hafa annan uppruna en íslenskan í framhaldsskólum landsins má ætla að flestir séu í allt of fjölmennum hópum sem henta illa því sérhæfða íslenskunámi sem þeir eiga rétt á. Ef við gefum okkur að hóparnir séu að meðaltali 50% stærri en þeir ættu vera, þá erum við þar búin að finna aðra fimm milljarða sem upp á vantar og þá alls komnir tíu milljarðar. Svona vinda innviðaskuldirnar upp á sig. Það þýðir þá varla fyrir Daða Má núverandi fjármálaráðherra að bjóða Ingu upp á einn eða tvo milljarða eða mínustölur í nafni hagræðingar. Til samanburðar hafði Þorgerður Katrín að meðaltali úr 55 milljörðum að spila og spurning af hverju Inga ætti að sætta sig við 35 milljarða með miklu umfangsmeiri áskoranir? Hvað ætlar þú að gera Inga? Höfundur er framhaldsskólakennari. Heimildaskrá Fjársýsla ríkisins. (e.d.). Ársreikningar ríkisins. Sótt 18. febrúar 2026 afhttps://arsreikningar.rikisreikningur.is/ Guðjón Hreinn Hauksson. (2026, 11. janúar). Skipulagt svelti í framhaldsskólum. Vísir.https://www.visir.is/g/20262827411d/skipu-lagt-svelti-i-fram-halds-skolum Róbert Örvar Ferdinandsson. (2025, 2. október). Fjármál framhaldsskóla. Vísir.https://www.visir.is/g/20252783165d/fjarmal-framhaldsskola RÚV. (2025, 20. mars). Stjórnmálafræðingar: Afsögn Ásthildar Lóu skapar frið um störf ríkisstjórnar. https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-03-20-stjornmalafraedingar-afsogn-asthildar-lou-skapar-frid-um-storf-rikisstjornar-439329 Unnar Þór Bachmann. (2020, 18. nóvember). Húsaleiga framhaldsskólanna. Kjarninn. Sótt af https://kjarninn.is/skodun/2020-11-18-husaleiga-framhaldsskolanna/ Stjórnarráð Íslands. (e.d.). Fyrri ráðherrar. Mennta- og barnamálaráðuneytið. Sótt 18. febrúar 2026 afhttps://www.stjornarradid.is/raduneyti/mennta-og-barnamalaraduneytid/fyrri-radherrar/ Annað talnaefni sótt af vef Hagstofu Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar