Vísitöluafglöp fyrr og nú Helgi Tómasson skrifar 25. febrúar 2026 15:30 Nú stendur yfir pólitískt karp um notkun á vísitölu. Hlutverk vísitalna er að gefa hugmynd um ástand og þróun ýmissa hagstærða. Vísitölur eiga ekki að vera stýritölur sem skuldbinda tvo aðila til að fylgja reikniskúnstum þriðja aðila. Núverandi karp er fjarri því að vera fyrsta sinnar tegundar. Fyrir rúmum 40 árum voru þingmenn að karpa um verðtryggingu. Minnihlutinn var með breytingartillögur (1143, mál 480). Þar voru þingmenn (gáfaðir og velmeinandi) að gera athugasemd við notkun á hugtakinu ,,launavísitala”. Þeir töldu réttara að nota ,,kauptaxtavísitölu”. Bakgrunnurinn var að menn töldu að laun hækkuðu umfram kauptaxta. Lokaorð þingmannanna voru að notast skyldi við kauptaxtavísitölu en ekki launavísitölu og að Kjararannsóknarnefnd skyldi reikna hana út mánaðarlega. Ég tel að þetta hafi verið um það bil 1985. Nokkrum árum síðar var undirritaður orðinn starfsmaður Kjararannsóknarnefndar og man eftir amk. einum fundi þar sem meta skyldi kauptaxtavísitölu. Það fór þannig fram að lagðir voru á borðið ýmsir kjarasamningar sem gerðir höfðu verið til hliðar við miðlæga samninga og aðilar launþega og vinnuveitenda sömdu síðan um það hver kauptaxtavísitalan ætti að vera. Undirritaður var þá kominn með doktorspróf í tölfræði og hafði tekið námskeið í vísitölufræðum. Þó ég væri mjög lélegur í þeim fræðum var mér fullljóst að þetta talnakukl væri merkingarlítið og jafnvel skaðlegt. Félagar mínir við borðið voru mér miklu reyndari og höfðu yfirburðaþekkingu á íslensku samfélagi. Ég held að kauptaxtavísitalan hafi dáið drottni sínum og 1989 þótti einum stjórnmálaleiðtoganum heppilegt að launavísitala ætti að vega 1/3 í lánskjaravísitölu á móti neysluverðsvísitölu og byggingarvísitölu. Ég held að þá hafi launavísitala ekki verið til og að í október hafi verið ákveðið að Hagstofan skyldi reikna hana út mánaðarlega frá og með áramótum. Þetta þótti mér varhugavert og algerlega væri óljóst hvernig þessi vísitala skyldi reiknuð. Ég sendi hagstofustjóra þrjár tillögur, sem gáfu mismunandi útkomu, og ljóst að þróun þessarar vísitölu væri háð því hvaða formúla skyldi notuð. Mig minnir að hagstofustjórinn hafi sett desembergildið á 100, bætt við áætlaðri hækkun í miðlægum samningum og skellt á janúargildið (hafði ekki tíma í annnað). Ég vona að hagstofufólki hafi farið fram síðan. Ísland er fjarri því eina landið þar sem mönnum hefur dottið í hug að gefa út vísitölur fyrir verð á vinnuafli. Þegar verð tveggja tímabila eru borin saman er mikilvægt að sambærilegar vörur séu skoðaðar. Tækniúrræðin eru til dæmis eins konar paraður samanburður þar sem einstaklingur í sama starfi er skoðaður á tveim tímabilum. Útkoman er þróun með mæliskekkju. Þegar þetta er endurtekið hrúgast mæliskekkjan upp. Til að leiðrétta fyrir slíku þarf einnig eitthvert mat á ástandi og nauðsynlegt að vega það á móti uppsafnaðri þróun. Ýmsar hagstofur reyna þetta og flokka eftir störfum og atvinnugreinum. Í Svíþjóð eru til dæmis tvær megin launavísitölur, bráðabirgðatalan gefin út með tveggja mánaða töf og lokatalan gefin út með 12 mánuða töf. Er þetta útborguð laun eða launakostnaður með sköttum og öllu? Þetta er einhvers konar vegið meðaltal af ólíkum vörum og útfærslur mismunandi eftir löndum. Launahópar og skattar eru ólíkir. Skattayfirvöld gætu snarfækkað láglaunastörfum með því að lækka skattleysismörk og flytja inn hámenntaða Indverja í stað láglaunafólks í ferðaþjónustu. Þannig myndi vinnuaflskarfan gjörbreytast. Ég held að opinberar hagstofur heimsins ættu að hætta að reikna launavísitölur. Það verkefni á betur heima hjá hagsmunaaðilum svipað eins og fjármálamarkaðarnir reikna sínar eigin vísitölur eins og Dow Jones og SP-500. Neysluvöruverðsvísitölur eru bestu vísitöluafurðir hagstofa og þær ættu að einbeita sér að slíku. Þegar Bandaríkjamenn markaðsettu opinber verðtryggð skuldabréf, TIPS árið 1996, töldu hagfræðingar að framleiðsluvöruverðsvísitala væri viðeigandi grundvöllur, en síðar var neysluvöruverðsvísitala notuð því útreikningur á henni þótti áreiðanlegri (leiðrétting vel þegin). Örorkubætur eru í eðli sínu tryggingabætur og það þætti ekki góð tryggingafræði að tryggingabætur gætu orðið hærri en tjónið sem tryggt er gegn. Ríkissjóður er nýlega búinn að lenda í miklum vandræðum vegna afglapa í vísitölufræðum. Skyldu menn draga lærdóm af ÍL sjóði? Verðtrygging húsnæðislána er velferðarauki sem veitir lágtekjufólki aðgang að langtímasamningum og þar með aðgengi að betra húsnæði fyrr á ævinni. Það sparar margar ferðir í bankann að semja um endurfjármögnun. Bandarískir vísindamenn (Campbell og Cocco) hafa reiknað út að framboð slíkra lánasamninga væri velferðarauki fyrir alla, sérstaklega lágtekjufólk. Ég skil áhyggjur forsætisráðherra að framboð slíkra lána bjóði heim hættunni á of mikilli skuldsetningu(bið afsökunar hafi ég misskilið). Höfundur er prófessor emeritus í hagrannsóknum og tölfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Tómasson Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir Skoðun Félagsmiðstöðvar eru haldreipi margra barna Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Skoðun Skoðun Félagsmiðstöðvar eru haldreipi margra barna Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar