Ætlar að sanna að hann sé bestur í Evrópu Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. febrúar 2026 11:00 Frístundaleiðbeinandinn og bardagamaðurinn Viktor Gunnarsson gerir miklar væntingar til sjálfs síns. Bardagakappinn Viktor Gunnarsson mætir Caleb Mullin á Glacier Fight Night á laugardagskvöldið í Úlfársárdalnum. Hann segist vera klár í slaginn og ætlar að sýna að hann sé sá besti í Evrópu.
Um er að ræða viðburð í blönduðum bardagalistum, þar sem fremsta bardagafólk Íslands mætir öflugum andstæðingum víðs vegar að úr heiminum. Þetta er annar viðburðurinn sem skipuleggjendur standa fyrir, hinn fyrsti fór fram í Andrews Theater við Ásbrú. Fjórir titilbardagar eru á dagskránni í Úlfarsárdalnum á laugardag. Einn af þeim sem berst um titil á laugardaginn er Viktor Gunnarsson, bardagakappi sem starfar á frístundaheimili samhliða íþróttinni. Hann mætir Bretanum Caleb Mullin og er spenntur fyrir því að berjast loks hér heima fyrir. „Síðan ég byrjaði í MMA þá er ég búinn að bíða eftir því að geta keppt á Íslandi fyrir framan Íslendinga. Ég er búinn að keppa alls staðar, alveg frá Evrópu og alla leið til Abú Dabí. Alltaf á flakkinu, en að geta keppt á Íslandi er geggjað“ sagði Viktor í viðtali við Stefán Árna Pálsson. Hvað þýðir að fara alla leið í MMA? Eins og sönnum bardagamanni sæmir er Viktor með mikið sjálfstraust og í kynningarmyndbandi fyrir bardagakvöldið á TikTok sagðist hann ætla að sýna hvers vegna hann sé besti bardagakappi Íslands og Evrópu. „Ég veit að ég sé sá besti á Íslandi í þessu en ég ætla að sýna líka að ég sé bestur í Evrópu. Mitt markmið er bara að fara eins langt og ég get með þetta. Ég elska að æfa, ég elska að keppa, ég elska að vera hluti af íþróttinni og sjá grasrótina blómstra í rauntíma.“ Hvað þýðir alla leið? Er það heimsfrægð og fullt af peningum? „Nei bara að keppa. Ég elska að keppa og ef peningur og heimsfrægð kemur með því, þá bara kemur það. En að keppa fyrir mig er bara það skemmtilegasta.“ Ekki í dag krakkar Viktor vinnur á frístundaheimili samhliða bardagaíþróttinni og segir það fara vel saman. „Það er bara rosalega fínt. Krakkarnir spyrja mig kannski um að sýna einhver spörk, en ég segi: Neiii ekki í dag. Þeim finnst þetta bara gaman“ sagði Viktor brosandi og með glóðarauga. Fjallað var um bardaga Viktors í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
MMA Mest lesið Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Fótbolti Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Enski boltinn Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Formúla 1 Bruno bætti metið eða hvað? Enski boltinn Stúkan: FH í miklum vandræðum Fótbolti Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Fótbolti Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Körfubolti Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins Fótbolti Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Enski boltinn Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Handbolti Fleiri fréttir Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu Hvað afleiðingar hefur fallið á West Ham ? Como í Meistaradeild í fyrsta skipti í sögu félagsins George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Stúkan: FH í miklum vandræðum Elín Klara sænskur meistari Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Daníel Tristan lagði upp í tapi Malmö Erfiður dagur á skrifstofunni Bruno bætti metið eða hvað? Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Vestri gæti mætt stórveldi á Þróttarvelli Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Hafþór Júlíus misnotað lyf síðustu átján ár Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Dagskráin í dag: Lokaumferð enska boltans Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Fernandes valinn besti leikmaður tímabilsins Orri á skotskónum Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Kane með þrennu í úrslitaleik Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira