Sigurður stefnir á La Liga innan fjögurra ára Valur Páll Eiríksson skrifar 25. febrúar 2026 10:30 Sigurður Bjartur Hallsson fer ágætlega af stað með Mérida á Spáni. Mynd/Mérida Sigurður Bjartur Hallsson samdi nýlega nokkuð óvænt við spænskt lið í þriðju efstu deild og skoraði sitt fyrsta mark á dögunum. Hann setur stefnuna á að komast í La Liga á næstu fjórum árum.
Framherjinn var kynntur sem leikmaður Mérida í lok janúar en spænska liðið keypti hann frá FH þar sem hann hefur leikið í Bestu deildinni undanfarin tvö sumur. Hann samdi við félagið til sumarsins 2028 með möguleika á árs framlengingu. Sigurður skoraði 16 mörk í 26 leikjum með FH í fyrra, þar af sex mörk í fimm leikjum eftir uppskiptingu deildarinnar. „Ég átti ekki beint von á því að Spánn yrði fyrir valinu en þetta var mjög spennandi þegar þetta kom upp á borðið. Mér fannst erfitt að segja nei við þessu og ákvað að hoppa á þetta,“ segir Sigurður um ákvörðunina að stökkva til Spánar. „Ég er á fullu að reyna að læra spænskuna núna og ég held að þetta verði allt töluvert auðveldara þegar ég næ tökum á henni, allt þetta dagslega. Þeir eru ekkert brjálæðislega góðir í ensku.“ Merida situr í 5. sæti A-riðils spænsku C-deildarinnar. Liðið í umspilssæti um sæti í B-deild. Sigurður Bjartur skoraði eitt marka liðsins á sunnudaginn var. „Þetta fer nokkuð vel af stað. Fyrsti mánuðurinn var svolítill aðlögunartími. Það var ekkert svo heitt þegar ég mætti hingað en hitinn er aðeins farinn að taka við sér. Það voru 22 gráður í leiknum í gær (á sunnudag) og ég mun þurfa að venjast því. Ég er að aðlagast öllu öðru nokkuð hratt,“ segir Sigurður sem mætir sterkum liðum í deildinni og er ánægður með hversu gott umhverfið er á nýjum stað. „Það eru mörg B-lið sterkra liða í deildinni. Real Madrid Castilla og Barcelona B í deildinni sem eru mjög professional. Mérida er það líka. Þetta er mjög gott umhverfi. Við erum með þrjá sjúkraþjálfara og lækni, svo risastórt þjálfarateymi, það eru um fimm eða sex í teyminu,“ segir Sigurður. Markmiðið er að komast upp í B-deildina. „Það er markmiðið hjá okkur, alveg klárlega, að vera í umspilinu og reyna að komast upp.“ Yussuf Poulsen er fyrirmynd fyrir það sem Sigurður ætlar sér á næstu árum.Getty/Ulrik Pedersen Sigurður leit þá til dansks landsliðsmanns við ferðalagið til Spánar. Hinn 31 árs gamli Yussuf Poulsen reis hratt upp metorðastigann hjá þýska liðinu RB Leipzig, sem hann samdi við árið 2013. „Þegar þetta kom inn á borð til mín hugsaði ég mikið til Yussuf Poulsen sem fór í Leipzig þegar þeir voru í fjórðu deild og fór upp um fjórar deildir með þeim. Það er svona möguleikinn sem ég sé í þessu verkefni, að geta verið kominn í La Liga innan þriggja til fjögurra ára,“ segir Sigurður. Viðtalið má sjá í spilaranum.
Spænski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Sjá meira