Grunnskólinn fyrr og nú Ólöf P. Úlfarsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 11:00 Grunnskólinn stendur traustum fótum í samfélaginu. Kennurum finnst almennt gefandi að vera kennari og sjá árangur og uppljómun nemenda sinna þegar nýir hlutir opnast. Grunnskólinn var undir stjórn Menntamálaráðuneytisins þar til árið1966 er flutningur varð á verkefnunum til sveitarfélaga. Frumkvæði og sjálfstæði einstakra skólaumdæma og skóla og valdreifing í ríkisrekstri var aðalhvatinn að flutningi grunnskóla til sveitarfélaga. Skv. lögum um grunnskóla nr. 91 frá 2008 er rekstur almennra grunnskóla á ábyrgð og kostnað sveitarfélaga. Þau bera ábyrgð á heildarskipan skólahalds, þróun einstakra skóla, húsnæði og búnaði, sérúrræðum grunnskóla, sérfræðiþjónustu og mati og eftirliti. Fyrstu árin gengu þessi nýju lög vel. En með árunum fór að halla undan fæti hjá sveitarfélögum. Það fór að bera á skorti á peningaflæði til að halda skólabyggingum við. Kennarar fóru að dragast aftur úr launum til jafns við aðra sérfræðinga sem unnu hjá öðrum atvinnurekendum. Árið 2008 kom skóli án aðgreiningar í tíð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur þáverandi menntamálaráðherra og síðan Katrínar Jakobsdóttir sem tók við sem menntamálaráðherra árið 2009. Skóli án aðgreiningar þýðir að menntakerfið á að mæta hverjum nemanda á hans forsendum. Nemendur vinna saman óháð getu í námsgreinum og nemendur með fötlun eiga rétt á hverfisskóla sínum. Þetta eru sannarlega góð markmið og gefandi fyrir alla sem vinna að kennslu. Til þess að skóli án aðgreiningar gangi upp því þarf því mikið fjármagn. Það þarf að meðaltali nokkra þroskaþjálfa í hvern skóla, sálfræðing í hvern skóla, nokkra talmeinafræðinga, nokkra iðjuþjálfa og hjúkrunarfræðing í fulla vinnu. Þétt net og skólamiðstöðvar í hverju sveitarfélagi á að halda utan um sína grunnskóla. Sveitarfélögin anna þessu varla, þau eru mismunandi stór og hafa mismunandi mikla tekjuauka. Því fór sem fór, og fer sem fer að á sumum stöðum er viðhaldi ekki sinnt. Engir eða fáir sérfræðingar aðrir en kennarar eru að störfum og með aðsetur í grunnskólanum. Aðrir sérfræðingar eru á miðstöðvum sem þjóna mörgum skólum. Því miður hafa sveitarfélögin látið kennara eina um að takast á við skóla án aðgreiningar. Þeir geta verið í 5 mínútur hjúkrunarfræðingar, næstu 5 mínútur sálfræðingar, næstu 5 mínútur hegðunaráðgjafar. Þá er komið 15 og stundum meira en 15 mínútur af 40 mínúta tíma sem fer í störf sem sveitarfélögin gætu haft sína sérfræðinga til staðar í. 25 mínútur af 40 mínútum fara þá í upphaflegt hlutverk kennarans sem er líka að: fræða, að kenna, að miðla námsefni, sýna aðferðir í einstökum námsgreinum o.fl. Ef kennslutíminn er tvöfaldur, þ.e.40x40 hefur kennarinn meira ráðrúm til að gera það sem hann menntaði sig í. Ef eitthvað gerist í kennslustundinni fer tíma í að koma á vinnufriði aftur. Sveitarfélög gætu gefið út sameiginlega reglur um hvernig tekið er á alvarlegum hegðunarbrotum. En það hefur fallið í hlut kennarans að taka á þeim og þannig er tími kennarans skertur aftur til kennslu. Svo getur fólk verið undrandi á því að námsárangur í Pisa könnun sé ekki betri, og að lesskilningi hafi hrakað. Benda má t.d. á að eitt bæjarfélag tilkynnti að lækki þyrfti laun bæjarfulltrúa sinna og takmarka opnunartíma í sundi vegna launakrafa kennara. Svo tæp eru sum sveitarfélög að það er lítið aukreitis í rekstur grunnskóla. Flokkur fólksins í borgarstjórn hefur ætið talað fyrir að einn sálfræðingur sé í hverjum grunnskóla. Hver hlustar og hver framkvæmir það? Árið 2011 þegar Katrín Jakobsdóttir var menntamálaráðherra var ný aðalnámskrá grunnskóla gefin út og þar ákveðið að nemendur í grunnskólum fái lokaeinkunn í bókstöfum en ekki tölustöfum. Þetta var kynnt fyrir skólastjórum á sínum tíma en lítið var kynnt fyrir kennurum. Kennarar fengu þetta í fangið og fóru i mikla vinnu við að endurskrifa námsmarkmið og lykilhæfni í hverju fagi fyrir sig. Mentor sem sveitarfélögin kaupa þjónustu frá fyrir grunnskólana, kepptust líka við að breyta sínu kerfi sem tók sinn tíma. Ómælt álag var lagt á kennarastéttina en eins og venjulega vann stéttin þetta verkefni af alúð. Í dag eru ennþá umræður um að taka tölustafi upp í einkunnarkerfi grunnskóla og þá sérstaklega hjá unglingadeildinni. Það skýtur nefnilega skökku við að nemendur grunnskóla útskrifist með A,B+,B,C+,C,D en fari síðan í framhaldsskólann sem gefur einkunn í tölustöfum. Mörgum finnst ef til sök séð að gefa 1-4 bekk tákn með umsögnum eins og frammúrskarandi - hæfni náð - á góðri leið - þarfnast þjálfunar - og hæfni ekki náð. Síðan komu farsældarlögin árið 2021 í tíð Ásmundar Einars Daðasonar þáverandi menntamálaráðherra. Í þeim felst að efla þverfaglega samvinnu í málum barna og að börn og foreldrar hafi greiðan aðgang að samþættri þjónustu. Þjónustunni er skipti í þrjú stig til að fá yfirsýn yfir þjónustukerfið og að allir fái samfellda þjónusti við hæfi. Staðan er sú sama og fyrir farsældarlögin, því allaf eru allir aðilar sem koma að skólabörnum boðnir og búnir að veita alla þá þjónustu sem til er. En fjármagnið vantar og biðlistarnir eru ennþá á sama stað, röðin er löng. Nemendur með erlendan bakgrunn hefur fjölgað mikið í grunnskólum. Sveitarfélög og menntastofnanir voru ekki tilbúin til að taka á móti þessum fjölda. Munum að þessi börn munu þó eins og börn af íslensku bergi brotin erfa framtíðina. Hvernig menntun ætlum við að gefa og veita þessum nemendum? Oft er skortur á námsefni og margar bækur búnar í upphafi skólaárs og koma seinna eða ári seinna. Svona rétt eins og íslensku nemendurnir ganga að sínum kennslubókum á hverju hausti, þá gera erlendu börnin það í minna mæli. Veit nemandi af erlendum uppruna hver Anna Frank var ? Nemandi af íslenskum uppruna á að vita það í 8.-9. bekk því hann fær kennslubækur um fyrri og seinni heimsstyrjöld og kennslu við hæfi. En lítið námsefni er fyrir erlenda nemandann. Breytum þessu, það eru margir möguleikar til að fá námsefni við hæfi. Það mætti þýða námsefni yfir á erlend tungumál, það mætti gera útdrátt úr kennslubókum svo einhver þekking berist erlendu nemendunum. Allir nemendur eiga sína sterku þætti og veikari. Líka erlendu börnin. Þau þurfa líka aðstoð í skóla án aðgreiningar. Það er til lítið af málþroskaprófum fyrir erlenda nemendur, það eru ekki til Logos próf til að greina dyslexíu fyrir erlenda nemendur, það er sumu ábótavant í menntakerfinu okkar. Skóli fyrir alla, já alla. Það góða er að mikil gróska er hjá mörgum kennurum erlenda nemenda að búa til námsefni og framleiða. Síðan er það gefið áfram í mörgum tilvikum til annara. Þannig eru kennarar, þeir sinna starfinu sínu af alúð og umhyggju. En þrótturinn fer að minnka ef engin er aðkoma ríkisins á skipulögðum bókum og fræðslu fyrir erlendu nemendurna. Í umræðum um grunnskólana okkar hefur margt verið rætt í gegnum tíðina og margir eru t.d. hlynntir skóla án aðgreiningar. Það var vel gert að koma því kerfi á en eitt gleymdist, það eru okkar hæfileikaríku nemendur sem klára hverja námsbóka á fætur annarri. Nemendur sem hafa áhugamál að læra fleiri tungumál en dönsku í grunnskóla, feta sig áfram með vísindalegum aðferðum og tilraunum í náttúrufræðum, og læra meira í nýsköpum. Í sumum grunnskólum er þó boðið upp á framhaldsskóla áfanga í íslensku og stærðfærði. Svo eru nemendur sem bóklegt nám á ekki mjög vel við í skóla án aðgreiningar, en geta beitt sér verklega og þyrftu að fá tækifæri á unglingastigi undir leiðsögn t.d. framhaldsskóla til að byrja á sínu áhugamáli. Allt þetta stuðlar að meiri ánægju nemanda og þroska í grunnskóla og eflir þá sem einstaklinga. Inga Sæland er mennta- og barnamálaráðherra og hefur mikinn metnað fyrir hönd menntakerfisins í heild og má búast við góðri framsækni í skólamálum. Höfundur er B.ED og M.A í náms- og starfsráðgjöf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar