Íslandsmeistarinn gekk út á miðju móti og tekur sér pásu Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. febrúar 2026 08:02 Matthías hefur náð mögnuðum árangri í pílukastina en ekki fundið gleðina síðustu mánuði. darts.is Ríkjandi Íslandsmeistarinn í pílukasti, Matthías Örn Friðriksson, er hættur að kasta í bili. Hann segist ekki hafa fundið gleðina í íþróttinni lengi og labbaði út á miðju móti um helgina en útilokar ekki að snúa aftur síðar meir.
Athygli vakti um helgina þegar fimmfaldi Íslandsmeistarinn Matthías labbaði út í miðjum leik í Flórídana-deildinni. Hann hafði með herkjum unnið fyrstu viðureign sína en var lentur 2-0 undir í annarri viðureigninni, þegar hann ákvað að leggja pílurnar frá sér og snúa ekki aftur. „Það er svolítið síðan gleðin fór úr þessu,“ sagði Matthías í samtali við Vísi. „Ég hefði svo sem ekkert átt að mæta í þetta mót [um helgina]. Ég var að keppa en ákvað bara í miðjum leik að þetta væri komið gott. Ég lagði pílurnar frá mér og labbaði í burtu. Ég var að spila við vinnufélaga minn og hann sagði fyrir leik: „Góða skemmtun.“ En svo bara byrjum við að spila og þá fatta ég að ég hef ekkert gaman af þessu lengur. Og ef þetta er ekki gaman, af hverju að vera að þessu?“ bætti Matthías við. Betra að stíga til hliðar en að vera ekki hundrað prósent Hann segist hafa fundið svipaða tilfinningu þegar hann hætti fótbolta en Matthías var á sínum tíma leikmaður Þórs og Grindavíkur í efstu og næstefstu deild. „Maður hætti að geta gefið sig hundrað prósent í þetta og þá ákvað ég bara að þetta væri komið gott. Það er svipað núna, gleðin er bara dottin úr þessu. Þá er eins gott bara að stíga til hliðar, fókusa á eitthvað annað, og svo veit maður aldrei hvað gerist í framtíðinni. Kannski rífur maður fram pílurnar einhvern tímann seinna en eins og staðan er núna þá þarf ég bara að taka smá pásu.“ Matthías var öflugur knattspyrnuleikmaður á árum áður. grindavík Matthías hefur gefið sig allan í pílukastið síðan fótboltaferlinum lauk. Hann hefur orðið Íslandsmeistari fimm sinnum, æft alla daga og keppt flestar helgar. Auk þess hefur hann verið í ýmsum störfum tengdu pílukasti. Til dæmis sinnt þjálfun, stjórnarstörfum og útsendingum á pílumótum. Gæti tekið Guðmund Stephensen á þetta Nú ætlar hann að einbeita sér að öðru og þá aðallega að koma líkamanum í liðlegt stand eftir að hafa lent í brjósklosi síðasta haust. Matthías mun þó áfram vera eitthvað í kringum pílukastið en ekki sem keppandi. „Ég hjálpa eitthvað aðeins til með tæknilegu hliðina. Við erum að streyma frá viðburðum og ég er enn þá aðeins inni í því. Svo eru félagarnir enn þá félagar mínir og verða það áfram.“ Þá útilokar hann ekki endurkomu síðar meir, enda aðeins 39 ára gamall. „Menn toppa í pílunni milli svona 45-55 ára. Þannig að ég gæti tekið Gumma Steph [Guðmund Eggert Stephensen] á þetta. Tek pásu í tíu ár, kem síðan aftur og verð langbestur,“ sagði Matthías léttur í bragði að lokum.
Pílukast Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Landsliðskona í Val Handbolti Fleiri fréttir Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Sjá meira