Best klæddu pör sögunnar Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. febrúar 2026 20:00 Það er eitt að vera flott klæddur og annað að vera vel klætt par. Getty Tískan er margbreytilegt fyrirbæri þar sem hver og einn reynir að fylgja eigin takti en flottheitin eiga það til að aukast til muna þegar pör leika sér að því að klæða sig skemmtilega upp saman. Hér verður farið yfir nokkur slík pör í sögulegu samhengi.
Listinn dregur innblástur frá nýlengri grein tískutímaritsins Dazed og er að sjálfsögðu langt frá því að vera tæmandi. JFK Jr. og Carolyn Bessette Sjónvarpsþættirnir Love Story: John F. Kennedy Jr. & Carolyn Bessette eru að gera allt vitlaust á streymisveitunni Disney+ en þar er farið yfir ástarsögu Johns Kennedy yngri, sem var sonur forsetans sögulega, og tískudrottningarinnar Carolyn Bessette. View this post on Instagram A post shared by Vogue (@voguemagazine) Carolyn starfaði hjá Calvin Klein og var ein af þeim sem skilgreindi stíl níunda áratugarins. Spaggettí-kjólar, svartar og elegant flíkur, hlébarðakápur, stílhrein töffarastígvél og beinar gallabuxur voru meðal annars það sem myndaði epískan stíl hennar. View this post on Instagram A post shared by Vogue (@voguemagazine) Kennedy yngri var líka óhræddur við að taka áhættu í klæðaburði, lék sér með liti og skemmtileg snið, hjólaði allt og var með afslappaðan íþróttastíl í bland við smart jakkaföt. John F. Kennedy Jr. og Carolyn Bessette stórglæsilegt hátískupar. Ron Galella/Ron Galella Collection via Getty Images David og Victoria Beckham Hjón sem eru í raun konungborin þegar það kemur að tísku og frægð. Eitthvað umtalaðasta par Bretlands, fyrrum Kryddpía og núverandi forstjóri risa tískuhúss og einhver ástsælasti knattspyrnukappi sögunnar. View this post on Instagram A post shared by Dazed (@dazed) Stöðugt í sviðsljósinu, elska athyglina, bæði með eigin Netflix seríu um líf sitt og uppvaxtarár. Rosalegt fjölskyldudrama. En stællinn og klæðaburðurinn undantekningarlaust til fyrirmyndar. View this post on Instagram A post shared by Victoria Beckham (@victoriabeckham) Rihanna og A$AP Rocky Tónlistarparið Rihanna og A$AP eru mómentið, fortíðin og framtíðin. Rihanna er auðvitað athafnakona með meiru, Fenty tískudíva með óaðfinnanlegan stæl sem enginn í Hollywood kemst nálægt. Elegans og ofurtöffari og allt þar á milli og förðun sem segir sex. View this post on Instagram A post shared by Vogue (@voguemagazine) Rapparinn A$AP Rocky er líka gullfallegur og glæsilegur og veit hvað hann syngur þegar það kemur að tískunni. Eitt af hans vinsælustu lögum er einmitt lagið Fashion Killa frá árinu 2013 og þar birtist Rihanna, mörgum árum áður en þau byrjuðu saman. RuPaul og Georges LeBar Raunveruleikastjarnan og ein frægasta dragdrottning heims RuPaul Charles giftst sínum heittelskaða Georges LeBar, sem er ástralskur listamaður, árið 2017. Georges LeBar og RuPaul glæsilegir á Met Gala 2019. Taylor Hill/FilmMagic Strákarnir eru með ólíkan stíl sem passar svo skemmtilega saman þar sem Georges fer stílhreinar leiðir og RuPaul hugsar út fyrir kassann. Lily Rose Depp og 070 Shake Leikkonan og kúltúrkrakkinn Lily Rose Depp og rapparinn 070 Shake eru sjóðheitar saman og alltaf svo ótrúlega töff klæddar, hvor á sinn einstaka máta. 070 Shake og Lily-Rose Depp glæsilegar saman. Ronald Martinez/Getty Images Lily Rose er með skvísulegan en hráan stíl, leikur sér með þröngar flíkur og skemmtileg mynstur og 070 Shake er mikill töffari í víðu og stóru. Courtney Love og Kurt Cobain Rómantíska rokkparið sem fór alla leið með „heroin chic“ lúkk tíunda áratugarins og hlaut gríðarlega sorgleg örlög. Hjúin voru oftar en ekki ótrúlega töff í bland við það að vera svolítið sjúskuð enda alvöru rokkstjörnur. Courtney Love og Kurt Cobain ásamt dóttur þeirra Frances Bean á góðri stundu. Jeff Kravitz/FilmMagic, Inc Love lék sér með rómans og gamlar Hollywood víbrur, þar sem innblástur var meðal annars sóttur til Marilyn Monroe. Cobain, sem var aðalsöngvari Nirvana, virtist alltaf bara hafa hent sér í eitthvað, sem kom fáránlega vel út. Rauð skvísusólgleraugu í bland við röndóttan bol og rifnar gallabuxur. Iconic. Grace Jones og Dolph Lundgren Súperstjarnan, tónlistarkonan, fyrirsætan, leikkonan og tískudrottningin Grace Jones ögraði staðalímyndum og hefur alltaf farið eigin leiðir. Þau áttu í intensívu ástarsambandi frá 1983 til 1986 og kynntust þegar Lundgren var ráðinn sem lífvörður hennar í Ástralíu. Grace Jones og Dolph Lundgren ekkert eðlilega nett á því árið 1984.Ron Galella/Ron Galella Collection via Getty Images Þá hjálpaði hún honum að næla sér í hlutverk í kvikmyndinni A View To Kill sem leiddi til mikillar frægðar hans. Hjúin léku sér að því að klæða sig skemmtilega upp saman og þóttu um tíma eitthvað langflottasta par Hollywood. Grace Jones er auðvitað á topplista yfir best klæddu konur sögunnar og hefur hún eflaust haft jákvæð áhrif á tískuvit Lundgren. View this post on Instagram A post shared by Boy Smells (@boy__smells) Lenny Kravitz og Lisa Bonet Eitt best klædda par sögunnar sem eignaðist eina best klæddu dóttur sögunnar Zoe Kravitz. Tískuvit út í gegn og stæll sem enginn getur fest kaup á, hann er bara meðfæddur. Tónlistargoðsögnin Lenny Kravitz er alltaf heitur og útvíðar leðurbuxur, prjónapeysur, litir, reimar og annar kynþokki einkennir stíl hans. Lenny Kravitz og Lisa Bonet sturlað töff saman í New York árið 1987. Vinnie Zuffante/Getty Images Lisa Bonet er alltaf elegant, bóhó pæja og þó að ást þeirra hafi ekki enst þá heldur parastíll þeirra áfram að veita fjölda para innblástur um allan heim. Mick og Bianca Jagger Drottning og konungur stúdíó 54. Diskódrottning og leðurrokkari. Goðsagnir í tísku. Bianca Jagger og Mick Jagger voru eitt flottasta par sögunnar. Ron Galella/Ron Galella Collection via Getty Images
Tíska og hönnun Hollywood Ástin og lífið Mest lesið Íslensk hjón búa umkringd öryggisvörðum Lífið KK aldrei borgað minna í húsnæðislán en þegar Bjarni var ráðherra Lífið Föst með dauða tölvu og reynir að undirbúa stjórnarfund Lífið Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Tíska og hönnun Kveður Emily fyrir Audrey Hepburn Lífið Björn skellti sér strax í sokkana Tíska og hönnun Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna Lífið Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Lífið Best klæddu pör sögunnar Tíska og hönnun Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Tíska og hönnun Fleiri fréttir Best klæddu pör sögunnar Björn skellti sér strax í sokkana Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Þetta eru drottningar tískuvikunnar í París Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Robyn í hönnun Sólar Hansdóttur Skilnaðarhringir slá í gegn: „Ég set minn á löngutöng“ „Ég fékk alveg gæsahúð þegar ég sá þetta“ Kjólasaga Brooklyns loðin Valentino er allur Ein heitasta stjarna í heimi Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum „Eins nakin og ég kemst upp með“ Sjá meira