Hin eilífa kosningabarátta innan KSÍ Sævar Þór Sveinsson skrifar 28. febrúar 2026 08:01 Á 77. ársþingi KSÍ sem var haldið árið 2023 var kosið um það að lengja kjörtímabil formanns KSÍ úr tveimur árum í fjögur. Tillagan var felld með 35 atkvæðum gegn 34 atkvæðum. Þó ber að hafa í huga að einungis 76 atkvæðisbærir fulltrúar mættu á ársþingið af þeim 138 sem höfðu atkvæðisrétt. Á sama ársþingi var hins vegar samþykkt tillaga um að lengja kjörtímabil varastjórnarmanna úr einu ári í tvö ár. Ársþingið fór fram á Ísafirði, en mætingin er gjarnan minni á þau ársþing sem haldin eru á landsbyggðinni. Í viðtali við fotbolti.net skömmu fyrir ársþingið árið 2023 sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, þáverandi formaður KSÍ, að 50 af 55 aðildarsamböndum UEFA væru með fjögurra ára kjörtímabil fyrir sína formenn. Það að formanni KSÍ sé gerður sá óleikur að gíra sig upp í kosningabaráttu annað hvert ár er fráleitt. Formaður KSÍ er einn mikilvægasti hlekkurinn í knattspyrnuhreyfingunni og á að vera leiðandi í stefnumótun KSÍ og annast samskipti við önnur knattspyrnusambönd, FIFA, UEFA, ríki, sveitarfélög og ÍSÍ. Formanni KSÍ verður að vera gefinn tími til þess að sinna þessum verkefnum og efla og rækta tengsl sín. Það er knattspyrnuhreyfingunni til hagsbóta. Það er ekki knattspyrnuhreyfingunni til hagsbóta að kjörtímabil formanns KSÍ sé tvö ár. Ég er fullviss um það að allir þeir einstaklingar sem bjóða sig fram til formanns KSÍ séu ekki að því til þess að tjalda til einnar nætur. Það virðist þó vera að aðildarfélögin standi í þeirri trú. Mögulega kunna ástæðurnar þó að vera aðrar, kannski vilja aðildarfélögin fá að heyra loforð um gull og græna skóga á tveggja ára fresti. Gott og vel, höldum áfram að gera formann KSÍ að lýðskrumara sem þarf að flaðra upp forsvarsmenn aðildarfélaga. Vandinn er sá sami hjá stjórnarmönnum KSÍ sem þurfa einnig að endurnýja umboðið sitt á tveggja ára fresti. Lýðræðið er auðvitað gott og blessað, og eðlilegt að formaður og stjórnarmenn þurfi að endurnýja umboðið sitt. Það ætla ég ekki að þræta fyrir. En hversu oft þarf slík endurnýjun að fara fram? Í hvað vill knattspyrnuhreyfingin að þessir einstaklingar setji tíma sína og krafta í? Höfundur heldur úti vefnum utanvallar.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein KSÍ Mest lesið Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar