Öryggisgæsla landsliðsins aukin og engir sénsar teknir Valur Páll Eiríksson skrifar 23. febrúar 2026 12:18 Eysteinn segir óheppilegt að staðan hafi komið upp í Mexíkó. Öryggisgæsla sé mikil í kringum landsliðið og KSÍ setji öryggismál í forgang. Samsett/Gett/Vísir Mikil öryggisgæsla er í kringum íslenska karlalandsliðið í fótbolta sem statt er í Queretaro í Mexíkó og mætir heimamönnum í æfingaleik á miðvikudag. Fulltrúar KSÍ taka enga sénsa varðandi öryggi leikmanna og starfsfólks eftir ófremdarástand sem skapaðist í landinu í gær í kjölfar þess að mexíkóski herinn skaut einn helsta glæpaforingja landsins til bana. „
Ég hef ekki heyrt í okkar fólki í morgun en heyrði í þeim í gærkvöldi. Við höfum fengið upplýsingar frá mexíkóska knattspyrnusambandinu sem er í beinu sambandi við yfirvöld þar og við erum í sambandi við yfirvöld hérna. Staðan er tekin reglulega og aðalatriðið að gæsta fyllsta öryggis. Það er það sem við erum að gera,“ segir Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, í samtali við Vísi. Aðilar að CJNG glæpagenginu stóðu að hefndaraðgerðum víða um Mexíkó í nótt vegna dráps mexíkóska hersins á El Mencho, foringja glæpasamtakanna CJNG. Bílar voru brenndir og vegum lokað. Íslenska landsliðið er statt í borginni Queretaro. Þar átti að fara fram leikur liðs Queretaro við Juarez í mexíkósku úrvalsdeildinni í nótt. Honum var aflýst af öryggisástæðum þar sem yfirvöld á svæðinu töldu öruggast að lágmarka flæði fólks svo skömmu eftir óeirðirnar. Að tugir þúsunda flykktust á fótboltaleik var talið óæskilegt. Eysteinn segir sambandið setja öryggið á oddinn. „Það er númer eitt, tvö og þrjú að fyllsta öryggis sé gætt og það eru engar áhættur teknar. Það er gætt vel að liðinu úti og öryggisgæslan góð. Það er allt í góðum gír og góður andi á æfingum og allt það. Auðvitað slær það menn þegar svona kemur upp og svo þurfum við að skoða stöðuna eftir því hver framvindan verður,“ segir Eysteinn. Gríðarleg öryggisgæsla Eysteinn segir að öryggisgæslan hafi verið umtalsverð í kringum íslenska liðið. Hún hafi verið aukin enn frekar í gær. „Öryggisgæslan var mjög mikil þegar þeir komu til landsins, að mér skilst. Þeir eru auðvitað að undirbúa sig fyrir HM sem á að vera í Mexíkó í sumar. Þetta er ágætis æfing fyrir það. Öryggisgæslan hefur verið mikil síðan liðið kom út og enginn skortur á því. En þegar svona kemur upp fara menn í aðeins aukalega,“ „Ég held það sé óþarfi að panikka, þó við gerum ekki lítið úr ástandinu. Við tökum bara stöðuna aftur í morgunsárið þegar þeir vakna,“ segir Eysteinn. Hvernig var hljóðið í mönnum þar ytra í gær? „Það var farið beint í að upplýsa hlutaðeigandi aðila og aldrei gott þegar svona er. En það var ágætis hljóð í öllum og allir vel gíraðir svo sem fyrir leikinn. En auðvitað er aldrei gott þegar svona óvæntar uppákomur,“ segir Eysteinn. Ekki útilokað að aflýsa þurfi leiknum Því er þá velt upp hvort aflýsa þurfi leiknum. Nú þegar var leik í Queretaro, þar sem landsliðið er statt, aflýst í gær. Queretaro átti að mæta liði Juarez í mexíkósku úrvalsdeildinni en ákveðið var að sá leikur færi ekki fram í gær. Hefur komið til umræðu að aflýsa leiknum? „Það verður bara metið. Það hefur engin ákvörðun verið tekin um frestun. Það er verið að bíða og sjá til og halda ró sinni og okkar striki ásamt öðrum hlutaðeigandi aðilum,“ „Auðvitað er ömurlegt að þetta skuli gerast þarna úti en þetta er bara staðan. Við bara metum hana reglulega í sambandi við alla hlutaðeigandi aðila og förum eftir þeim leiðbeiningum og tilmælum sem liggja fyrir. En aðalatriðið er að gæta fyllsta öryggis og taka engar áhættur í einu eða neinu,“
Landslið karla í fótbolta Mexíkó Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira