Sundlaugin sem Reykjavíkurborg vanrækir – en borgarbúar elska Sigfús Aðalsteinsson, Baldur Borgþórsson og Hlynur Áskelsson skrifa 22. febrúar 2026 11:02 Laugardalslaug hefur frá opnun, árið 1968, verið stærsta, fallegasta og vinsælasta sundlaug landsins sem laðar að sér tugi þúsunda gesta árlega, innlenda sem erlenda. Laugardalslaug er ekki bara sundlaug, hún er íþrótta- og almenningsmannvirki sem tengist heilsuræktarstöðinni World Class Laugum og saman mynda þessi tvö fyrirtæki heilsueflingarmiðstöð á heimsmælikvarða. Laugardalslaug er ekki bara fallegasta sundlaug Reykjavíkur, hún er með þeim fallegri í heiminum. Vandfundin er almenningslaug í þessum gæðaflokki. Allt viðhald á þessari laug ætti að vera í forgangi hjá þeim sem hana eiga og reka. Þessi sundlaug er og á að vera stolt Reykjavíkur. Fjöldi erlendra ferðamanna sækir laugina heim árlega og á erlendum netsíðum er mælt er með henni sem einum markverðasta stað innan höfuðborgarinnar til að heimsækja. Með réttu ætti Laugardalslaug að vera á Heimsminjaskrá. Friðuð! Laugardalslaug stendur á heilögum stað. Þeim stað sem sagt er að Ingólfur Arnarson hafi séð reyk stíga upp og því nefndi hann landið Reykjavík. Reykvískara gerist það ekki. Og enn stígur reykurinn Ingólfi, föður Reykjavíkur, til ævarandi minningar. Undirritaðir mæta í þessa laug daglega og það virkilega svíður að sjá í hvað stefnir. Við í Okkar Borg stígum hér fram til að berjast fyrir björgun Laugardalslaugar. Í mörg undangengin ár hefur það verið deginum ljósara að lykilinnviðir laugarinnar eru í alvarlegu ástandi og brýnt sé að ráðast í umfangsmiklar endurbætur á stúku, laugarkeri, lagnakerfi og búningsklefum auk annarra þátta. Sérfræðiskýrslur sýna að mannvirkið er komið að fótum fram vegna vanrækslu og skorts á reglulegu viðhaldi. Stúkan – hættuleg og óviðgerðarhæf Nýjustu ástandsskýrslur um stúkuna við Laugardalslaug draga upp kolsvarta mynd. Í skýrslu sem lögð var fyrir borgarráð í júní 2024 kemur fram að sýnilegar skemmdir séu víða í burðarvirki, þar má telja sprungur í steypu, raka- og frostskemmdir sem og ryðskemmdir í burðarstáli. Sérfræðingar telja að umfang eyðileggingarinnar sé slíkt að ekki verði hægt að gera við stúkuna og hún sé því óviðgerðarhæf, sem sagt ónýt! Þó er tekið fram að hún muni ekki hrynja „að svo stöddu“, en engu að síður gæti þurft að loka henni vegna hættu á frekari niðurbroti og hugsanlegri hættu af völdum jarðskjálfta. Greinilegt er að Reykjavíkurborg hefur sofið á verðinum þegar kemur að viðhaldi þessa sögulega mannvirkis, eða að viljandi sé verið að láta hana grotna niður. Laugarker og botn – ástandið mjög slæmt Ástand laugarkersins hefur einnig verið til skoðunar eftir tvær lokanir síðustu ára og þar er vitað um aðkallandi ágalla. Árið 2023 þurfti að loka lauginni í þrjár vikur vegna óvæntra skemmda sem uppgötvuðust þegar hún var tæmd. Þá kom í ljós að botn og burðarvirki laugarinnar voru í verra ástandi en búist var við. Árið 2024 var laugin tæmd á ný, að þessu sinni í tvær vikur, til að halda viðgerðum áfram því skemmdir voru umfangsmeiri en gert var ráð fyrir. Pípulagnir og hitastýringar – bilanir og viðhaldsvandi Beinar upplýsingar um ástand pípulagna í Laugardalslaug eru ekki auðfundnar en gestir, sem og undirritaðir, sjá tíðar lokanir á heitum pottum, finna fyrir flökti á hitastigi í sturtum og stundum algjört hitavatnsleysi. Þetta bendir til þess að pípulagnir og hitastýringar laugarinnar séu komnar til ára sinna og þarfnist endurnýjunar. Viðhaldsskortur og vanræksla – áratuga uppsafnað aðgerðaleysi Á öllum sviðum hefur viðhaldi Laugardalslaugar verið vanrækt. Í skýrslu sérfræðinga um stúkuna kemur fram að viðhaldi hafi „lítið verið sinnt“ undanfarin ár, nema hvað varðar brýnustu aðgerðir vegna vatnsleka. Sama mynstur má sjá í viðhaldi laugarinnar sjálfrar – þar sem umfang viðgerða jókst við hverja lokun, og viðhald sem átti að klárast á einni viku þurfti þrefaldan þann tíma. Búningsklefar laugarinnar eru einnig farnir að láta á sjá og þegar þessi orð eru rituð er fjöldi skápa ónothæfir vegna bilaðra læsinga sem ekki eru lagaðar. Rót upptalins vanda er langvarandi vanræksla! Laugardalslaug er í niðurníðslu sem krefst tafarlausrar endurnýjunar. Laugardalslaug er ekki aðeins mikilvæg sem sundlaug – hún er hjarta Reykjavíkur, stoðkerfi íþróttamenningar, sál samfélags og sögulegur landnámsstaður. En samkvæmt opinberum skýrslum og fréttum er ástand hennar orðið óboðlegt og þeim til skammar sem ábyrgð bera á hennar viðhaldi og velferð. Sé ekkert aðhafst má búast við frekari skemmdum, lengri lokunum og aukinni hættu bæði fyrir gesti og starfsfólk. Það er ljóst að Laugardalslaug þarfnast heildarendurnýjunar ef hún á áfram að gegna hlutverki sínu sem helsta heilsueflingar- og samfélagsmiðstöð Reykjavíkurborgar. Vandinn er ljós en ekkert er að gert. Þetta verkefni þarf að hefjast STARX! Okkar Borg – Okkar framtíð Höfundar skipa efstu þrjú sætin framboðslista Okkar Borg í komandi borgarstjórnarkosningum þann 16. maí nk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Baldur Borgþórsson Sundlaugar og baðlón Reykjavík Okkar borg Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar